Heimilisblaðið - 01.05.1956, Blaðsíða 40
Eplin eru þroskuð. Palli og Kalli biðja gíraffánn að
hjálpa sér að tína eplin af trjánum. „Þú hefur svo
langan háls, og þá þurfum við engan stiga!“ segja
þeir. Gíraffinn er fús til verksins. En eplin bragð-
ast svo vel, að hann gleymir að henda þeim niður
í körfuna til Kalla og Palla. Hann borðar öll eplin.
Það var ljótt af honum! En um kvöldið verður hon-
um hræðilega illt maganum. Hann biður Kalla og
Palla um hjálp. Þeir gefa honum lyf og leggja hita-
poka á kvið hans. Daginn eftir er gíraffinn orðinn
heilbrigður. Hann fer strax til Kalla og Palla og
biður þá að fyrirgefa sér.
Frænka Kalla og Palla hefur skrifað þeim, að hún
ætli að heimsækja þá. Kalli og Palli eru önnum
kafnir við að taka til í húsinu. En þá vantar gólf-
teppi. Þeir biðja tígrisdýrið að leggjast á gólfið fyrir
framan hægindastólinn, en þá er eins og nýtt gólf-
teppi sé á gólfinu. Frænka sezt í hægindastólinn
og setur fæturna á fallega „gólfteppið". En tígris
dýrið kitlar svo mikið, að það fer að urra, og Kal1
og Palli segja upp alla söguna. Frænka hlær og se®
ir, að tígrisdýrið megi til með að setjast heldur
til borðs með þeim og fá sér kaffisopa. Það líka
tígrisdýrinu heldur betur.