Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1956, Blaðsíða 33

Heimilisblaðið - 01.05.1956, Blaðsíða 33
 ^orgunroðann og spurði sjálfa sig í huganum, , vernig á því gæti staðið, að á þessari fögru J°rð skyldi fólkið ekki vera glatt og hamingju- samt? Að eyrum hennar barst marr í hurð og hún rökk í kút. Það var Julien. »Þú ert orðin dauðþreytt, vina mín,“ mælti oann. »Nei,“ stundi hún upp, ánægð yfir að vera e*ai lengur ein. »Hvíldu þig nú,“ svaraði hann. ^ Hún kyssti móður sína með sársaukasvip. Vl næst fór hún upp í herbergi sitt. ^ Hagurinn var langur og fólkið dapurt í ragði. Baróninn kom undir kvöld. Hann grét. ^aginn eftir fór jarðarförin fram. ^ -^egar Jenný hafði búið um líkið og þrýst °3si á enni þess, fór hún burt. Það var von Sestunum á hverri stundu. Gilberte kom fyrst. Hún henti sér grátandi brjósti vinkonu sinnar. , , t um gluggann sáust vagnarnir aka um mið og háværar raddir heyrðust í anddyrinu. Sorgarklæddar konur komu hver af annarri inn í herbergið, konur, sem Jenný þekkti ekki. De Coutelier markgreifafrú og de Briseville greifa- frú kysstu hana. Allt í einu varð hún þess vör, að Lísa frænka faldi sig hrædd að baki hennar. Hún þrýsti henni blíðlega að sér, svo að gamla konan skalf af geðshræringu. Julien kom inn í fullum skrúða. Hann var hreykinn yfir því, að húsið skyldi vera fullt af tignum gestum. Hann bað konu sína hvíslandi um ráð við einu og öðru, og sagði í trúnaði: „Allur aðall sveitarinnar er hér. Það er ekki afleitt til afspurnar!“ Hann hélt áfram göngu sinni og heilsaði konunum með hátíðlegum svip. Eftir greftrunina voru Lísa frænka og Gil- berte greifafrú einar eftir hjá Jenný. Greifa- frúin kyssti hana öðru hvoru og endurtók í sífellu: „Vesalings Jenný, vesalings Jenný!“ Þegar de Fourville greifi kom til þess að sækja konu sína, grét hann beisklega, eins og hann væri að syrgja móður sína. Frh.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.