Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1972, Qupperneq 16

Heimilisblaðið - 01.11.1972, Qupperneq 16
Svisslendingurinn sem réð gátur skriðjöklanna Við rætur svissnesku Alpanna, með hina voldugu, glitrandi skriðjökla, fæddist afburða- maður, sem átti eftir að verða fyrsti maður- inn, pr skildi þýðingu þessara miklu ísauðna, að gegna í jarðsögunni. Louis Agassiz fæddist árið 1807, og fékk í vöggugjöf alhliða áhuga á undrum náttúrunn- ar. Engjarnar og silfurtær vötriin, sem voru umhverfis fátæklegan fæðingarbæ hans, buðu ungum dreng upp á margt lenydardómsfullt athugunarefni, og þegar foreldrar hans, sem voru gáfuð og guðhrædd, sýndu honum fegurð náttúrunnar, fann hann, að hún hefði yfir- bragð mikilleika Guðs. Hann var gáfaðastur af systkinum sínum, og móðir hans sá svo um að hann fékk stórt herbergi til rannsókna og tilrauna sem hann stundaði. Hann var fæddur foringi, og aðrir drengir í bænum hlýddu honum þegar hann skipaði þeim að veiða fiska og skordýr, eða safna plöntum. Þessi sterklegi, rauðbirkni drengur, með brúnu augun byrjaði þegar á barnsaldri að þroskast í þá átt að verða vís- indamaður og kennari, enda stendur Ijómi um nafn hans enn þann dag í dag. Þegar hann var tíu ára gamall, höfðu for- eldrar hans efni á að senda hann í heimavistar- skóla og fimmtán ára gamall innritaðist hann í menntaskóla. Þar lærði hann fljótt það mikið í latínu, grísku og stærðfræði að hann gat lokið prófi, en annars eyddi hann mestu af tíma sínum á náttúrufræðisafninu. Til þess að gleðja föður sinn hóf hann lækn- isnám, en þegar hann hafði lokið prófi lagði hann þá grein á hilluna. Við háskólana í Zúrich, Heidelberg og Mún- chen hlaut Louis Agassiz heiðursviðurkenning- ar og varð vinsæll nemandi. Bezti vinur hans hét Alexander Braun, og bjuggu þeir saman. Braun varð síðar frægur grasafræðingur. Braun átti systur sem hét Cécilie og tókust ástir með henni og Louis, og þau giftust árið 1833. Þótt Louis Agassiz væri aðeins 26 ára hafði hann þegar náð alþjóðlegri viðurkenningu fyr- ir rannsóknir sínar á sviði náttúruvísinda. Þýzkur landkönnuðir höfðu gefið honum sér- kennilega fiska, sem þeir höfðu veitt í fljótum Brasilíu. Þeir voru næstum allir af áður ó- þekktum tegundum, en Agassiz gat fljótlega greint þá og skýrt, og greindi frá þessu í bókum um niðurstöður sínar, frá ýmsum tím- um ásamt frábærum teikningum. Agassiz varð oft að svelta til þess að geta gefið út niðurstöður rannsókna sinna. En ekki var einu verkinu lokið þegar annað tók við. Fjallaði það um ferksvatnsfiska í Mið-Evrópu, um steingervinga af fiskum, kórala og kuð- unga. Það þekkist varla nokkur annar náttúru- fræðingur í sögunni, sem hefur unnið eins stórkostleg afrek, á eins mörgum sviðum, og þeim sem Agassiz stundaði á fyrstu annríkis- árum sínum. Fræðsluhæfileikar hans voru einnig með fá- dæmum. Fyrsta staða hans var prófessors- embætti við háskólann í Neuchatel. Laun hans voru lág og rannsóknarstofurnar búnar léleg- um tækjum. En Agassiz þurfti raunar ekki annað en fróðleik sinn og mælsku til þess að vekja áhuga nemendanna á efninu. Jafnhliða kennslustundunum flutti hann fyrirlestra um margvísleg efni og ætíð fyrir troðfullu húsi áheyrenda. Þegar hann fór í gönguferðir, hópuðust börnin um hann því frásagnarhæfileikar hans voru svo frábærir að jafnvel fífill — eða lítið lamb — urðu að hreinustu undraverum. En hið mikla starf sem Agassiz innti af höndum í þágu náttúruvísindanna var í öfugu hlutfalli við hugsun hans um heimilishagi- Cécile var gáfuð og siðavönd kona. Hún ann- 212

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.