Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1972, Side 17

Heimilisblaðið - 01.11.1972, Side 17
aðist börnin þeirra þrjú af miklu ástríki, og teiknaði jafnframt óviðjafnanlegar myndir af fiskum í nokkrar bækur eiginmanns síns. En hún var veikbyggð og tilfinningarík, og þær byrðar, sem henni voru lagðar á herðar urðu henni ofraun. Heimili hennar var ætíð fullt að hirðuleysis- legum vísindamönnum, teiknurum og stein- Prenturum. Heilu næturnar rökræddu þeir vandamál náttúruvísindanna við Agassiz, og mat heimtuðu þeir á öllum tímum sólarhrings- ins, og settust að í húsinu — svo mánuðum skipti — ef svo bar undir. En það var ekki nóg með þetta. Hverjum eyri, sem Cécile tókst að útvega, eyddi maður hennar í bókaútgáfur um hið vísindalega starf sitt. Það var því ekki furða þótt Cécile flýði stundum til bernskuheimilis síns í Þýzka- landi. En þegar það kom fyrir flutti móðir Louis á heimilið og annaðist son sinn og vini hans. Hún var glaðlynd og stjómsöm, og kunni þá list að láta Hfið líða auðveldlega og án erfiðis. Þegar Agassiz hafði setið sólarhringum saman boginn yfir skrifborði sínu, gat hann skyndilega risið á fætur, teygt úr sterklegum líkamanum og hrópað: „Nú skulum við fara út og sjá hvernig hefur gengið með skrið- jökulinn.“ Og svo lögðu hann og vinir hans af stað til þess að njóta sólskinsins í Alpafjöllunum. Agassiz var orðinn gagntekinn af þeim við- fangsefnum sem ísbreiður Alapfjallanna buðu upp á. Fram til þessa höfðu menn reiknað með að vatnssraumar hefðu skapað lögun dalanna og fljótanna — ef eitthvað var hugsað út í þetta efni á annað borð. Vatnsstraumurinn átti einnig að vera skýr- 'ng á því aö maður gat allt í einu fundið stærð- ar slípistein úr graníti á svæði sem aðeins var gert úr kalksteini. Jafnframt álitu menn að jökullinn héngi eins og klakadrönglar á bjarg- hrúnum. En bændurnir vissu að ef maður féll niður í jökulsprungu og dó, mundi lík hans fljóta með vatninu fram undan jöklinum að vissum tíma liðnum. Smátt og smátt skapaði Agassiz sér mynd af sköpun jarðarinnar. Hann skildi að hinir L-mynduðu dalir hlutu að vera grafnir af ís- Heimilisblaðxð num. Dalir sem vatn hafði grafið niður voru V-lagaðir. Hann reiknaði einnig út að hin frægu fjallavötn í Sviss hefðu myndast við það að mismunandi vatnshlaup hefði stíflast af jökulöldum, þ.e.a.s. jarðlögum sem hinn hreyfanlegi ís hafði borið með sér en orðið eftir þegar ísinn bráðnaði. Og hinar djúpu skorur í þessa tröllauknu graníthella hlutu að hafa myndast við það að laust grjót hafði borist með horfnum jökul- hlutum, sem á sínum tíma höfðu borið þá með sér alla leið ofan úr fjöllunum. Svissnesku bændurnir sögðu að gróðurlendið við rætur skriðjöklanna stækkaði með hverri kynslóð. Af þessu dró Agassiz þá ályktun að skriðjökullinn bráðnaði smátt og smátt — minnkaði ár frá ári — og nú hófst hann handa við að sanna hvort þessi kenning væri rétt og hóf að mæla hraða og stefnu skriðjökulsins. Með hjálp nokkurra áhugasamra vina byggði hann sér ofurlítinn kofa á Aarjöklinum þar sem hann kom sér upp tilraunastöð. Þetta var fyrsta bækistöð hans, og þaðan stundaði hann rannsóknir og tilraunir árum saman. Röð af járnhælum, sem hann hafði rekið niður, þvert yfir jökulinn, hreyfðist til. Þeir sem voru í miðjunni færðust fyrst, þar til að þeir féllu að lokum. Þetta sýndi að hreyfingin var mest í miðjum jöklinum, og á yfirborði hans. Með því að leggja sig í lífshættu lét Agassiz sig síga niður í eina af þessum djúpu, blágrænu jökulsprung- um og rannsakaði þá þessa ógurlegu ísrisa að innanverðu. Hann gerði sér ferð til Skotlands og fékk staðfestingu á að í háfjöllunum þar voru greinilegar núningsrákir, sem stöfuðu af fram- rás jökla. Hann fór gaumgæfilega yfir árangur rann- sókna sinna og grundvallaði á þeim hina mikil- vægu ísaldarkenningu sína. Þessi kenning gerir ráð fyrir að gífurlegt ísmagn hafi sigið niður yfir lönd Norður-Ev- rópu frá pólasvæðunum og breytt útliti yfir- borðs jarðarinnar. Þegar hann birti þessar kenningar sínar var þeim mætt með ískulda og efasemdum. Jafnvel sumir hans beztu vina sögðu að honum hefði verið nær að rannsaka aðeins fiska. En Agassiz hélt sitt strik, skrifaði bækur 213

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.