Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1972, Qupperneq 28

Heimilisblaðið - 01.11.1972, Qupperneq 28
Natalie kinkaði kolli, án þess að snúa sér við. „Já.“ „Hvað er nú að?‘‘ spurði Annabel ákveðin. „Þú hefur þó ekki komið til þess að segja mér, að allir karlmenn séu eins, því það veit ég.“ Hún hló dálítið hvellar en venjulega. „Ef til vill hefi ég upplifað eitthvað líkt þessu.“ „Það var ekki þannig,“ flýtti Natalia sér að segja. „Hann — hann sama sem bað mig um að giftast sér, Annabel.“ „Hvað? Spurði hann þig hvort þú vildir giftast sér, Larry Burgess? Hann er einhver eftirsóttasti piparsveinn í bænum." Natalie brosti lítið eitt. „Er það ekki öfugt? “ „Öfugt? Þetta er furðulegt. Stórkostlegt. Og hvenær ætlar þú að giftast honum? “ Natalie hló að ákafanum í Annabel. „Ég ætla alls ekki að giftast honum.“ Annabel varð sem þrumu lostin. Hún hné niður á legubekkinn, og starði ásakandi á Natalie. „Geturðu ekki skilið, að ég elska hann ekki,“ svaraði Natalie alvarlega. „Ég get alls ekki gifst honum, án þess að elska hann.“ „Það gætir þú vel gert, en þú ert svo mikill þöngulhhaus, að þú ert vís til að láta það vera.“ Hún sló krepptum hnefunum niður í legu- bekkinn. „Ég vildi gefa mikið fyrir að fá slíkt tæki- færi. Ég hefi endalaust verið að nudda í þér, til þess að fá þig til að fara út og skemmta þér, og komast í kynni við karlmenn, því ég hefi vorkennt þér að eiga engan aðdáanda — en hvað skeður. Þú kynnist eins frábærum manni og Larry Burgess, sem bæði hefur góða stöðu og peninga, og þegar hann spyr þig, hvort þú viljir giftast honum, hryggbrýtur þú hann. Hefur þú virkilega vísað honum al- gjörlgea á bug, Natalie?“ Natalie snéri sér frá glugganum. „Nei — ekki algjörlega,“ sagði hún með hægð. Þú skilur. Hann fór ekki fram á að ég svaraði þegar í stað. Hann sagði aðeins að — að hann væri ástfanginn af mér, og einhven daginn bæði hann mig að giftast sér.“ Það varð þögn. Annabel reis á fætur. „Þá hefur þú ekki verið alveg eins heimsk og ég bjóst við.“ „Hvers vegna segirðu þetta?“ Rödd Natalie varð óvenjju hvöss. „Hvers vegna hafði það verið heimskulegt af mér, að segja honum strax, að ég vildi ekki giftast honum? Hvað kemur staða og peningar þessu máli við. Mað- ur giftir sig ekki vegna þess. Hvernig getur nokkur gift sig, öðrum manni en þeim, sem maður elskar.“ Rödd hennar fjaraði út. „En þú gætir lært að elska hann. Þú mund- ir geta gert það, ef þú legðir þig fram.“ Natalie hristi höfuðið. „Ástin er ekki neitt, sem kemur og fer eftir óskum, eða skipun- um. Það er þess vegna sem lífið er — er hreint víti.“ Hún faldi andlitið í höndum sér, og gaf frá sér eins og lágt kjökurhljóð. Annabel gekk til hennar og tók um herð- ar hennar. „Kæra vinkona. Heldurðu að ég skilji þetta ekki. Ég er ef til vill dálítið ill- kvittnisleg við þig, en ég geri það til þess að reyna að koma ögn af skynsemi inn í þitt fallega, heimska höfuð. Kastaðu ekki frá þér tækifærinu, að giftast góðum, myndarlegum manni, sem getur veitt þér peninga og ham- ingju, aðeins fyrir draum, sem ekki getur rætzt. Þú hefur lifað í þessum draumi allt þitt líf. Og það er ekki rétt, hvorki gagnvart þér, né honum líka, Natalie.“ „Meinar þú, að þetta sé ekki rétt gagnvart Bob?“ hvíslaði hún. „Hvers vegna þyrfti það að vera það. Hann getur ef til vill líka verið hrifinn af þér, en þar horfir öðru vísi við. Hann er kvæntur. Ég efast um, að konan hans vildi gefa honum eftir skilnað. Og geri hún það, myndi það áreiðanlega verða honum til mikils baga. Vafa- samar skilnaðarástæður, eru ekki heppilegar fyrir þekktan skurðlækni, sem á framtíðina fyrir sér. í slíku tilfelli yrði samúð fólks öll með konunni, en andúðin bitna á lækninum. Ef þú elskar hann í raun og veru, skaltu hverfa úr lífi hans. Það hlýtur þú að skilja?“ Natalie sat á svefnbekknum, þar sem Anna- bel hafði látið hana setjast. Það var þján- ingarsvipur á andliti hennar, og hún néri hendurna í örvæntingu. „Þú hefur rétt fyrir þér,“ sagði Natalie. „Þangað til nú fyrir skömmu áleit ég, að ég 224 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.