Heimilisblaðið - 01.11.1972, Síða 35
Kalli og Palli eru í veiðiferð. Allt í einu fá þeir
risafisk á öngulinn. „Ég er allt of stór í pottinn
ykkar,“ geispar fiskurinn, þegar þeir draga hann
upp. Kalli skýst heim eftir allra stærsta pottinum
þeirra. „Hann hlýtur að vera nógu stór, hugsar
hann. En það kemur í ljós, að fiskurinn hafði rétt
fyrir sér. Potturinn er allt of lítill. Þá henda sport-
veiðimennirnir sinum stóra feng aftur í vatnið.
„Við skulum reyna að veiða smærri fiskana, þeir
eru mátulegir í pottinn okkar."
Soffía frænka hefur gefið Kalla og Palla stóran
kassa með súkkulaði og bók um reykmerki Indíán-
anna. Palli fer á bak við hæðina til að gefa Kalla
merki. Að hálftíma liðnum kemur hann aftur.
„Skildirðu reykmerkin?" spyr hann ákafur. „Já,
bað getur þú verið viss um,“ svarar Kalli ánægð-
ur, „þú gafst mér merki um að ég skyldi borða
súkkulaðið sem fljótast og það gerði ég líka.“
Aumingja Kalli hafði verið snuðaður um súkku-
laðið, og það leið langur tími áður en hann fann
upp á þessum leik aítur.