Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1982, Side 4

Heimilisblaðið - 01.01.1982, Side 4
Við viljum halda áfram að vera það sem við erum. Þessi einlæga ósk um frið er dæmigerð í andrúmslofti klettabeltanna í Ardenna- fjöllunum og á hinum sólríku engjum Le Bon Pays. Allt þetta hefur einkar róandi áhrif, það komst ég að raun um í fyrsta skipti sem ég stóð í hægum andvara uppi í fjallahlíðunum ofan við bæinn Kaut- enbach. Hið eina sem rauf kyrrðina var fjarlæg kirkjuklukka. „Fyrir mig er þetta stórum betra en að svelgja róandi pillu,“ sagði ég við fylgdarmanninn minn, sem var einn af embættismönnum landsins. „Hér í landi þurfum við ekki að gleypa pillur til þess að öðlast frið og ró,“ svaraði hann. „Við eigum þetta innra með okkur.“ Friðsældin og jafnvægið í Lúxembúrg er sem fastmótuð í hispursleysi fólksins, hag- sýni þess og sterkri lýðræðiskennd. öll dag- blöðin f jögur eru flokkspólitísk. Þess vegna lætur hið opinbera dreifa umræðum þings- ins á tveggja vikna fresti í hvert og eitt hús í landinu. Sú útgáfa á sér stað allan tímann sem þingið situr, og þannig geta allir fengið hlutlæga frásögn af því sem er að gerast á vettvangi stjórnmálanna. Og segja má, að það sé einkennandi, að prent- un og dreifing þessarar opinberu útgáfu fer fram í hinum ýmsu prentsmiðjum til skiptis, svo að ekki sé hægt að segja, að einum sé hyglað öðrum fremur. Svo til öll böm í landinu ganga í sömu skólana, og bekkjarsamheldnin varir oft ævilangt. Dag nokkum, er þáverandi for- sætisráðherra, Joseph Bech, var á leið til sérlega mikilvægs fundar í þinginu, heyrði hann gluggapússara hátt fyrir ofan sig kalla: „Góðan daginn, Jósep!“ Bech leit upp til mannsins, gamals skólafélaga, og kallaði á móti: „Gættu þess nú að falla ekki!“ Gluggahreinsunarmaðurinn brosti til hans og svaraði: „Ja, ef þú fellur í dag, þá verður fall þitt miklu hærra!“ Segja má, að allir geti gengið beint inn til ráðherra og flutt mál sitt og létt af sér áhyggjunum. Hafi ráðherrann skroppið í mat, veit komumaðurinn að líkindum hvaða veitingahús eða krá hann hefur far- ið í. Og sé maður ókunnugur í bænum, þá er hægur vandi að hringja í hið opinbera og fá alla nauðsynlega fyrirgreiðslu. Síma- stúlkan gefur samband við hina réttu skrifstofu. Viðhorfið milli almennings og æðstu fjöl- skyldu landsins er að sama skapi alþýð- legt. Þegar Jean, sonur Charlottu stórher- togaynju, kvæntist 'belgísku prinsessunni Joséphine-Charlotte árið 1953, streymdu blaðamenn til Lúxembúrgar til þess að vera viðstaddir hátíðahöldin. Einn af þeim út- lenzku, sem vanur var því, að allt færi á annan endann ef eitthvað var að gerast hjá kóngafólkinu, spurði vegfaranda: „Hvers vegna stendur fólk ekki í röðum meðfram öllum götum til þess að koma auga á brúð- arfylgdina þegar hún fer framhjá?" Maðurinn leit á hann forviða: „Nú, mað- ur fer náttúrlega út á götu og horfir á fylgdina þegar hún fer framhjá, en mað- ur þarf svo sem ekki að standa tímunum saman til þess að sjá stórhertogynjuna og son hennar. Maður rekst á þau hér og þar í bænum svo að segja í hverri viku.“ Og þetta sagði hann dagsatt. Charlotta stórhertogaynja, sem á 25 barnaböm, fer til dæmis í búðaráp fyrir hver jól til þess að kaupa gjafir eins og aðrir foreldrar. Og engum finnst það hið minnsta skrítið. Lífiö er stál. Fjárhagsleg þýðing Lúx- embúrgar stendur reyndar ekki í réttu hlutfalli við stærð landsins. Fjöldi banda- rískra stórfyi-irtækja hefur valið þetta land sem aðsetur fyrir fjárfestingu sína, og fyrir bragðið hefur hertogadæmið þróað upp nýjar iðngreinar: gúmmí, plast, efna- iðnað, landbúnaðartæki og fjöldamargt annað. En stálframleiðslan, sem lengstuin 4 HEIMILISB LAÐ I Ð

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.