Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1982, Síða 10

Heimilisblaðið - 01.01.1982, Síða 10
Eggert Ólafsson: ÍSLANDSSÆLA (BROT) Þegar líður gamla góa, góðs er von um land og flóa, vorið bræðir vetrar snjóa; verpa fuglar einherjans út um sveitir Isalands; ungum leggur eins hún tóa úr því fer að hlýna; enga langar út um heim a'ð blína. Tjaldar syngja’ um tún og móa, tildrar stelkur, gaukur, lóa, endar hörkur hljóðið spóa, hreiðrin byggir þessi fans út um sveitir ísalands; æðarfuglinn angra kjóar, eru þeir að • hvína; enga langar út uni heim að blína. Sæt og fögur grösin gróa, gleðja kindur, naut og jóa, engjar, tún og auðnir glóa eftir boði skaparans, út um sveitir tsalands; að stekkjar-fénu stúlkur hóa og stökkva’ úr því við kvína; enga langar út Um heim að blína. góðverk. Ef ég ætti fjögur hundruð krón- ur, myndi ég ekki hika við að fóma þeim fyrir þennan fallega hund og gefa hann síðan aftur fyrri eiganda sínum. En ég er ekki með nema hundrað krónur á mér. Þær vil ég gjarnan leggja fram. Viljið þið, herrar mínir leggja ykkar skerf ? Eg held, að þannig gætum við í sameiningu bjarg- að málinu við.“ „Já, já, vissulega,“ heyrðist hvarvetna í manngrúanum. Ungi maðurinn dró nú fram hundrað króna seðil, setti hann í hatt- inn sinn og gekk síðan með hann milli við- staddra. Á fimm mínútum fylltist hattur- inn af seðlum og mynt. Ungi maðurinn gekk aftur til heildsalans og gamla manns- ins. Hann taldi fram fjárupphæðina. „550 la-ónur og 75 aurar,“ sagði hann hæstánægður. Hann rétti heildsalanum fjögur hundruð krónurnar, og í næstu and- rá þrýsti gamli maðurinn Hektor þétt að sér. Mannfjöldinn laust upp fagnaðarópi. Ungi maðurinn veifaði sem sigurvegari. „Herrar mínir,“ sagði hann. „Ég þyk- ist vita, að það sé ósk allra, að ég rétti gamla manninum þær hundrað og fimmtíu krónur og sjötíu og fimm aura sem fram- yfir eru.“ Við enn meiri fagnaðarlæti stakk hann peningunum í vasa öldungsins. En heild- salinn rétti fram sterklega höndina. „Herrar mínir,“ mælti hann til við- staddra. „Ég er að vísu viðskiptamaður fram í fingurgóma. En ég er ekki svo harð- brjósta sem þið máski haldið. Ég vil einn- ig leggja fram minn skerf. Ég hef breytt rangt, og um leið og ég afhendi þessa pen- inga, bið ég yður að fyrirgefa mér.“ 10 HEIMILISB LAÐ I Ð

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.