Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1982, Qupperneq 11

Heimilisblaðið - 01.01.1982, Qupperneq 11
Skáldsaga frá dögum Títusar keisara Eftir I. IHLENFELD Hinir tveir stóðu litla stund og virtu fyrir sér hamingju systkinanna. Þá sagði annar þeirra og það var enginn ótignari en Titus sjálfur: — Komdu, Antonius, við skulum fara; hér er okkur ofaukið. Og síðan hurfu þeir á brott, áður en þau systkinin vissu vitund af. Úti fyrir stóð heill skari af þjónum og sömuleiðis nokkrir fangaverðir og umsjón- armenn; heilsuðu þeir allir hinum unga keisarasyni með mikilli lotningu. — Er þrællinn, sem flutti mér tilkynn- inguna, hér enn? spurði Titus. Þá gekk Flavius fram með sigurbrosi yfir öllu afmyndaða andlitinu og mælti: — Herra, hér er ég. — Gajus, sagði Titus við einn af þjón- um sínum, þú verður hérna eftir og nokkr- ir þjónar með þér, þangað til þau tvö — hérna inni — koma út — þá fylgið þið þeim heim til Kvintusar skipherra. Hann þarna — og hann benti á Flavius, — vísar ykkur veginn. Síðan fór hann brott og Antonius með honum. VIII. Sigur. Það leið langt um, áður en Rut fengi °rði upp komið. Nú var það orðið sem hún hafði beðið Guð um með brennandi bænum, 0íí það svo skyndilega, að það gekk alveg fi'am af henni. En loks sleit hún sig lausa úr faðmi bróður síns og sagði um leið í hljóði: — Davíð, Davíð, bróðir minn, bemsku- vinurinn minn. Loksins hitti ég þig þá aftur, lof sé Guði. — — Já, lof sé Drottni Jesú Kristi, svar- aði bróðir hennar. Þá hrópaði Rut upp yfir sig og augu hennar tindraðu: — Svo þú trúir þá líka á hann, Davíð? — Já, kæra systir, ég trúi á hann og er skírður til hans. — Dásamlegi Guð, sagði Rut í hljóði. En segðu, hvemig það atvikaðist, að þú hef- ur nú fundið mig aftur? Hver hefur leitt þig hingað? — Þessir tveir menn, sem þú sást rétt áðan; þú getur nú víst getið þér til, hver annar þeirra var? Þá blóðroðnaði Rut skyndilega. — En er hann líka kristinn ? spurði hún hóglega. — Ekki ennþá, en hjarta hans tilheyrir Drottni og hann bíður eftir því einu, að hann verði skírður. Það var eins og Rut dreymdi. Hún hafði ekki dirfst að vænta svona mikillar hamingju. Þá heyrðist skyndilega öskur í fjarska, svo að hún hrökk titrandi saman. Þá minntist hún þess aftur. hvar hún var stödd og hvað hennar beið. Átti hún þá að deyja einmitt nú, þegar lífið blasti við henni bjart og dýrðlegt? Gæti það verið fyrirætlun Guðs? Davíð gat lesið úr augnaráði hennar, heimilisblaðið 11

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.