Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1982, Page 12

Heimilisblaðið - 01.01.1982, Page 12
livað hún hugsaði; hann lagði nú hendur um háls henni brosandi og’ mælti: — Láttu ekki hugfallast, elsku systir, þú þarft ekkert að óttast — þú ert frjáls. — Davíð, er ég frjáls? hrópaði Rut fagnandi. Hver hefur leyst mig? Hverjum á ég það að þakka? — Næst Guði áttu það Titusi að þakka, hinum unga syni keisarans. — Ó, bróðir minn, v.ið skulum falla á kné saman í fyrsta skipti — og þökkum Drottni alla miskunn hans. Davíð fann hjartanlega þrá hjá sjálfum sér til að gera það. Og þegar í stað steig svo brennheit þakkargjörð í dimma klef- anum upp til Guðs hjálpræðisins, eins og tvö ung börn hans geta framast beðið. Að lokinni bæninni leiddi Davíð systur sína út. Fangavörðurinn veik sér lotningarfyllst til hliðar fyrir þeim; gengu þau síðan út á götur Rómaborgar og stefndu þangað sem Kvintus átti heima. Gajus og þrælarnir komu í humátt á eftir. Á leiðinni sagði Davíð systur sinni frá tveggja ára veru sinni á herskipinu og hvernig það atvikaðist, að hann varð krist- inn. Sömuleiðis sagði hann frá samfund- um sínum við þá Titus og Antonius og um það er síðan dreif á dagana. Á Alexandíuhöfn var honum gefið frelsi að skipun Titusar og Antonius Arrius hafði reynst honum eins og vinur og birgði hann að öllu, sem hann þurfti á að halda. Svo fór hann til Rómaborgar með Titusi. Ant- onius hafði sagt honum, að hann hefði áður en hann fór, boðið ráðsmanni sínum að kaupa Rut frelsi og þess vegna hefði hann búizt við að hitta hana að heimili Arriusar. Hann hefði því skundað þang- að fullur glaðrar eftirvæntingar. Sér hafi því orðið sár vonbrigði, er Rut var þar eigi; þar á móti hafði hann fengið að vita hjá Marcellusi, hvernig sakirnar stóðu. Auðvitað urðu Antoniusi það líka hin mestu vonbrigði, og hann var áhyggjufull- ur út af forlögum Rutar. Marcellus friðaði hann þó með því að geta tjáð honum, að Rut væri enn hjá Klaudiu, og Klaudia hefði ekki í hyggju að gera henni neitt mein. En þá var Antonius kallaður aftur á fund keisara, og meðan hann dvaldi þar, hljóp þræll einn á brott'frá Klaudiu og kom til Marcellusar, og sagði honum að Rut yrði bráðlega gefin leikhúsinu. Þegar Antonius frétti þetta, þá varð hann utan við sig af hryggð og reyndi'þegar hina sömu nótt að frelsa hana. En það tókst honum samt ekki. Næsta morgun reyndi hann að nýju, en það varð líka árangurslaust. Honum var jafnframt sagt, að Rut yrði ekki bjarg- að, því að Domitian stæði á bak við þetta allt saman, þá var ekki annað úrræði, en að tjá Titusi, hvar komið væri og biðja hann ásjár. Titus var þegar viðbúinn að liðsinna vini sínum og fór jafnvel sjálfur til fangelsisins til að koma því á leið, að ungu stúlkunni yrði gefið frelsi. öllu þessu lýsti Davíð með mikilli mælsku fyrir systur sinni og hjai*ta henn- ar fagnaði því, að heyra sagt frá þeim kærleika, sem henni hafði verið sýndur og bróður hennar. Nú voru þau komin alla leið að húsi Kvintusar. Rut hljóp þá til og drap að dyrum. En er enginn kom til dyra, þá sagði hún: — Þá veit ég, hvar þau eru. Komum! En af því að þangað er ekki nema spöl- korn, þá getum við farið fylgdarlaust og þar að auki — bætti hún við á hebresku: gæti verið ógætilegt að fara þangað með þjónana, þess vegna bið ég þig, bróðir, þakkaðu þeim fyrir fylgdina og láttu þá. svo fara brott. Að því búnu gengu systkinin alein áfram í áttina þangað, sem Aquilas átti heima- Og þá voru þau ekki alein. Maður var að læðast í humátt á eftir þeim. Það var Flavius. 12 HEIMILISB LAÐ I Ð

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.