Heimilisblaðið - 01.01.1982, Side 26
Sólin skein glatt á heiðum himni. Kalli og Palli eru
neyddir til að slá grasið og vökva garðinn. Palli er
alveg uppgefinn og segist nú ekki geta meira. Hann
gengur að garðstóli og leggst í skugga af stóru tré.
Úti á veginum kemur íssalinn gangandi, hrópandi:
ÍS, ÍS, svalandi ÍS, komið og kaupið ÍS! Og nú er
Palli ekki lengur þreyttur, hann hleypur til íssalans
og kaupir stœrðar ís. Kalli er undrandi yfir hvernig
Palli getur hlaupið svona hratt. Hann sem var svo
þreyttur áðan.
Kalli og Palli og Óli broddgöltur eru i leyfi saman
þetta árið. Þeir leika sér oft saman. Nú eru þeir í
höfrungahlaupi. Kalli stekkur fyrst yfir Palla. Síðan
er röðin komin að Óla broddgelti. Hann er duglegur
í höfrungahlaupi. Þá er komið að Palla að stökkva
yfir Óla broddgölt, en hann hugsar sig um, áður en
hann stekkur, því broddamir á Óla eru hvassir. En
þá dettur Kalla í hug snjallræði. Hann fer heim og
sækir púða i rúmið sitt og leggur yfir bakið á Óla. Þa
getur Palli með góðu móti stokkið yfir Óla broddgölt.