Heimilisblaðið - 01.01.1982, Page 27
,.Við ætlum að fá pensla og málningu, því það er
ttiikil þörf á að mála heima hjá okkur," segja Kalli
°e Palli við kaupmanninn. „Það er gott, því að hjá
•hér fáið þið beztu pensla í heimi,“ segir kaupmaður-
btn. Kalli og Palli taka til við að mála loftið þegar
Þetr koma heim, en það gengur ekki vel hjá þeim,
málningin rennur ofan í ermina og pensillinn hangir
fastur í málningunni. Þá hleypuur Kalli af stað eftir
öðrum pensli stærri. En ekkert gengur betur með hon-
um og svo eru sóttir fleiri penslar og á myndinni get-
ur þú séð, hvernig loftið leit út að lokum.
Það er gott að sitja á baki fílsins og láta hann
hlaupa með sig. Kalli og Palli skríða á bak fílnum.
■>Hott, hott, áfram með þig,“ skipa þeir fyrir. Þungur
búkur fílsins fer á hreyfingu. Smátt og smátt eykur
fillinn hraðann og því hraðar sem hann hleypur þvl
•úeira gaman þykir bangsunum. En loks þreytist fill-
inn og staðnæmist til að fá sér að drekka. Hann slokr-
ar í sig vatni í litratali og svitinn lekur af honum.
Hann snýr nú rananum aftur og sprautar vatninu yfir
hrygg sér. En Kalli og Palli höfðu gleymt því, að þetta
gera fílar ævinlega, þegar þeir hafa drukkið.