Í uppnámi - 25.04.1902, Qupperneq 13

Í uppnámi - 25.04.1902, Qupperneq 13
3 meðal fremstu taflmanna að skipta á riddara og kongsbiskupi, en það mun koma yður að engu gagni, því að þér þurtið fyrst að skilja til fullnustu, hvernig beita á biskupi og riddara, en til þess er nauð- synlegt að kynna sér rækilega, hvernig máta má með þessum mönnum einum og kongi. Það er erfið en falleg skáklektía, sem margt má læra af einkum um þýðingu biðleika, og aðferðina við þesskonar mát skuluð þér festa ríkt í huga yðar, því að þó þau komi ekki opt fyrir í tefldum töflum, þá vinna þó biskup og riddari svo opt í sameiningu, að það er gott að þekkja styrkleika þeirra til fulls. Þegar reitalína opnast skuluð þér vera skjótur til að ná ráðum yfir henni. Ef þér liafið seint í tafli einu eða tveim peðum færra, skuluð þér reyna að komast í mannakaup þannig, að mótleikandi hafi öðruvísi litan biskup en þér; þá mun erfitt fyrir hann að vinna, ef þér getið eigi gjört jafntefli. — Kongur, biskup og hrókspeð geta ekki unnið gegn kongi einum, nema biskupinn fái ráðió þeim reit, sem peðið á að komast upp á; ef kongur getur ekki komizt á uppkomureitinn á undan peðinu, er eðlilega hægt að vinna. — Kongur og tveir riddarar geta ekki mátað berskjalda kong. Ef þér eruó í efa um, hvorn hrókinn eigi að færa á el [e8j, má segja, að venjulega sé réttast að færa kongshrókinn þangað, nema þér hafið í hyggju að færa bráólega fram kongsbiskupspeðið, þá er sem sé hrókurinn bezt settur á fl. Tvöfaldir hrókar hafa meira en tvöfalt gildi eins. Gildi hróks, sem stendur á 7. [2.] reitaröð, eykst um hálft peðs-gildi. í tafllokum þegar einungis eru eptir hrókar og peð, skuluð þér ekki hætta yður út í neinar skákþrautir nema þér getið myndað mátkvíar um konginn. En þér skuluð koma hróknum aptan að peðum hins, því aó þá veróur hann sem -úlfur í sauðahjöró. Ein hin algengasta yfirsjón vióvaninga er það, að þeir koma drottningu sinni of fljótt út á borðió og veróa svo opt að liörfa með hana heim aptur, ef þeir vilja ekki missa hana, en þá sitja hinir mennirnir þeirra heima. I flestum taflbyrjunum heyrir það til að halda drottningunni bak við fylkingarbrjóstin, að minnsta kosti nokkurn tíma framan af. Verió varkár í því að taka fjarlægt peð með drott- ningunni; opt tapast töíi vegna þess að drottningin hefur verió ginnt þannig í burtu frá vörninni. Peðagræðgi er löstur margra taflmanna, er þeir eigi fá yfirbugað; það er eigi svo að skilja að eigi sé gott að vinna peð, en eigi má kaupa það svo dýrt, að taflstaðan versni við það. ]?egar góður taflmaður lætur peð standa óvaldað, þá er það annaðhvort af gáleysi, eða það er agn eða af því að liann verður öðru aó sinna; þetta skulu þér athuga vel áður en þér takið peðið. 1*

x

Í uppnámi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Í uppnámi
https://timarit.is/publication/436

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.