Í uppnámi - 25.04.1902, Side 23

Í uppnámi - 25.04.1902, Side 23
13 Taflið. (Persnesk þjóðsaga.) Allan daginn, allau daginn Úti’ i garði Hússein og Parvis Við brunninn gjósandi í rósarunnum Reyndu tafl á borði steindu. Stjörnu tóku blys að brenna, Blikaði máni á vatni kviku — Húsi, þrælum, ökrum, auði, Öllu hafði Parvis tapað. Hjartfró sína átti’ hann eptir, Ambátt kærari’ en gullið skæra, Bjarta fljóðið með frjálsa hjartað, Pegursta sprund á Persagrundu. Hún var komin að horfa’ á taflið, Heyrði’ af Parvis að allt var tapað; Ekkert sagði’ hún, ekkert sagði’ liún, Að eins horfði’ á steinda borðið. Hússein leit hana, hló og sagði: “Um Hjartfró skulum við tefla að lokum, Móti henni allt hið unna Undir legg eg — þorirðu’ að tefla?” Parvis inn i augun djörfu Unga fljóðsins leit á glóðum, Æsandi sá hann þar elda rísa; Ekkert sagði’ hún, en brosti og þagði. “Gjörum, Hússein, sem þú segir, Seinast skulum við tefla um hana, Og annaðhvort, skal eg allt hér vinna, Eða’ allri minni sælu týna!” Byrjaði taflið bezta’ af öllum Við brunninn gjósandi í mánaljósi, Annar tefldi um æru sína, Annar um það, sem var meira’ en lífið. Runnu peð yfir reiti í sennu Og riddarar snarpir i árás skarpa, Dýrar fóllu’ um dreyrga völlu Drottningar með hlífum brotnum. Hússein löt þar biskupa báða Og biskup annan Parvis sinna, Að velli riddarar Hússeins hniga, Hrókamir loksins einir standa. Hróðugur Parvis horfði á fljóðið: “Heldurðu’ ekki’ eg vinni, kæra?” — “Biddu, ekki er unnið taflið, Eiga mun Hússein næst að leika”. Og er þagnaði þernan fríða, Þrammar hrókur fram á borðið, Hótar konginn hvita að máta Hreykinn kappi í næsta leiknum. Nú er úti um allan sigur! Alltof djarfur varstu Parvis! Nú stendurðu’ á öndu, hristist höndin, Hugurinn lamast, tungan stamar. En Hússein situr með hæðnisbrosi, Á Hjartfró lítur og stjörnublysin, Én aldrei litur hann yfir á Parvis, “Ertu’ ekki búinn?” spyr hann stundum.

x

Í uppnámi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Í uppnámi
https://timarit.is/publication/436

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.