Heimir - 01.09.1909, Blaðsíða 12
8
HEIMIR
Þá var lesið upp eftirfylgjandi tilboö frá hlutafélagi því, er
hefir gefiö út tímaritið Heimir : “Hluthafar blaösins bjóöa hér
meö hinu íslenzka unitariska kyrkjufélagi blaöiö Heimir til
'eignar og umráöa móti því aö kyrkjufélagiö skuldbindi sig til aö
borga hluthöfum þá hluti, er þeir eiga í blaöinu og kunna aö
krefjast borgunar á.”
Aö endingu skýröi útbreiöslu stjóri Pétur Bjarnason frá
útbreiðslu starfinu á þessu ári og árangri þess.
Á fundi er haldinn varsíöar af framkvæmdarnefndinni voru
þessir ni^nn kosnir í útgáfunefnd : Hannes Pétursson, Gunnar
Goodman, Rögnvaldur Pétursson, Guðmundur Árnason, Gísli
Jónsson, Friörik Sveinsson.
SANNFÆRING OG FYLGI
Sannleikurinn, í hvaða málum sem er, er aðallega skoöaöur
frá tveimur sjónarmiöurn. Annaö þessara sjónarmiöa er sjón-
armið þeirra, sem skoöa sjálfa sig kjörna til þess aö varðveita
sannleikann. Þeir skoöa þaö eitt sannleik, sem mennirnir hafa
trúað og haldiö aö væri rétt á undan þeim, þeir* styöjast viö
gamlar heimildir og segja, aö þaö sem einu sinni hafi veriö
álitið satt og rétt veröi altaf aö álítast satt og rétt. Hitt sjón-
armiöiö er sjónarmiö þeirra, sem vilja leita sannleikans. Þeir
skoöa þekkingu mansins sem sannleika ef hún aðeins byggist á
réttri rannsókn og hugsun, án tillits til þess hvort hún er sam- •
rýmanleg viö þaö, sem mennirnir hafa trúaö á liðnum öldum.
Fyrir þá er þroski mannsandans næg sönnum fyrir því, aö meiri
og stærri sannleikur hafi ávalt komiö í ljós er lengra var leitað
og dýpra rannsakaö. Þetta síöara sjónarmiö er í fullu sam-
íæmi við þá björtu og heillaríku lífsskoðun aö mönnunum fari
fram en ekki aftur ; hin fyrri aftur á móti er yfirlýsing þeirrar
ömurlegu skoöunar, aö mennirnir hafi einhvern tíma komist á
eitthvert stig, sem þeir um aldur og æfi veröi að standa á,