Kirkjuritið - 01.06.1935, Blaðsíða 13
Kirkjuritið.
Forsetar Kirkjufélagsins.
231
Séra Steingrímur Thorláksson.
Séra Kristinn K. Ólafsson.
inga sína, þegar honum fanst þvi misboðið, sem hann
laldi satt vera og. rétt. Hann var alvörumaður, hreinn og
beinn, en þó glaðlegur og þýður í viðmóti, brjóstgóður
og hjálpsamur við bágstadda, nægjusamur fyrir sjálfan
sig, en ör á fé til kirkjulegra þarfa, tryggur í lund og
grandvar í öllu dagfari sinu. A heimili hans dvaldi ég
fyrstu dagana, sem ég var í Canada, og mun aldrei
gleyma þeirri ástúð, sem þau hjónin sýndu mér þá og
altaf síðan, meðan þeirra naut við. Það er ekki of mælt,
að séra Jón hafi verið bæði mikill maður og góður og
prestur af öllu lijarta, enda naut bann í ríkum mæli
virðingar og kærleika þess safnaðar, sem liann þjónaði
svo lengi, og þeirra Vestur-lslendinga allra, seip ekki
voru á öndverðum meiði við hann í trúmálum.
Hjörn B. Jónsson var forseti 1908—1921. Hann er
fæddur að Asi í Kelduhverfi i N.-Þingeyjarsýslu 19. júní
1870. Sex ára gamall fluttist hann til Vesturheims með
foreldrum sínum. Að loknu guðfræðinámi við lúterska