Kirkjuritið - 01.06.1936, Side 27

Kirkjuritið - 01.06.1936, Side 27
Kirkjuritið. Guðshugmynd nútímans. 241 finning gagnvart þessum ógurlegu víðáttum efnis- heimsins. „Og þó lézt þú liann lítið á vanta við Guð“ hætir liið forna sálmaskáld við með furðulegri skarp- skygni. Því hvort er í raun og veru furðulegra: Stjörnu- þokan eða stjörnufræðingurinn? Stjörnuþokan er ekkerl annað en logandi lofttegundir í hamslausum óskapnaði. En maðurinn, sem athugar hana og mælir, áætlar fjar- lægð hennar og sundurgreinir efnin í henni; maðurinn, sem reynir að gera sér það í hugarlund, hvernig stjörnu- ])okan hefir orðið til og liver muni verða örlög hennar — er hann sannarlega ekki undursamlegra fyrirbrigði en kynjastærð efnisins ein — hinn dauði óskapnaður? „Ef vér dáumst að stærðinni einni“, segir rithöfundur- inn Cliesterton, „hví þá ekki að dást meira að hvalnum en manninum?“ Hver sú heimspeki, sem hygst að geta útskýrt tilver- una án ])ess að taka tillit til þess rannsakandi vits, sem íhugar tilveruna, hlýtur að vera skeikul og ófullkomin í stóratriðum. VII. Þessvegna setja öll hin æðri trúarbrögð traust sitl til þeirrar sannfæringar, að í manninum, viti Iians, tilfinn- ingum og andlegu lífi, hirti tilveran eittlivað af sínum æðstu leyndardómum — vafalaust ekki til fullnustu, því að margt eigum vér eftir að skynja og skilja, en í ein- liverjum mæli. En af þessu leiðir, að vér finnum ekki Guð á bak við skýin eins og frumþjóðirnar gera, l)eldur finnum vér hann fyrst og fremst gegnum hugsun vora, sál og til- finningar. Vér finnum Guð með því að álykta frá vorri eigin reynslu um gæzku, sannleika og fegurð og þá óend- anlegu möguleika, sem þessi liugtök fela í sér. Einungis með þeim hætti er unt að elska Guð af allri sálu sinni, öllum huga sínum, öllum vilja sínum og mætti.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.