Kirkjuritið - 01.06.1936, Qupperneq 41

Kirkjuritið - 01.06.1936, Qupperneq 41
Kirkjuritið. Barnatrú. 255 4 þjónustunnar. í hvert sinn, er ég heyri prestinn blessa yfir söfnuð- ina frá altarinu, með upplyftum höndum, er ég umvafin himnesk- um friði og vernd. Mér er kært að minnast kristindömsfræðslunnar heima. Það leik- ur andlegur bjarmi um þær minningar. Ég vildi óska, að sem flestir ættu rætur að rekja aftur í sina barnatrú. Það er líkt að eiga barnatrú og að eiga fé á vöxtum, er ávalt má gripa til. Á kaldranalegustu stundum lífsins má sækja huggun og frið i þann sjóð. Og eftir því, sem árin liða, finnur maður æ betur, hve dýrmætur þessi fjársjóður er. Ræðutexti við fermingu mína voru hin ógleymanlegu orð Páls postula (Filipp. 3, 4): „En eitt gjöri ég; ég gleymi því, sem að baki er, en seilist eftir því, sem fyrir framan er“. Út frá því tal- aði svo presturinn og brýndi fyrir okkur skyldurnar, er biðu okkar. ótti læddist inn í sál mína. Ég vil ekki sleppa því, sem á bak við er, hætta að vera barn og leggja út á djúp fullorðinsáranna. — Það getur verið, að kvíði setjist að hjartanu fyrst eftir. Það veit enginn nema Drottinn, sem sjálfur hefir nýlega tekið við hinni ófullkomnu j itningu. Fermingin er vegamót. Mér finst ég standa alein á ókunnum vegi. Foreldraliúsin fjarri. Enginn sem leiðbeinir, eða svarar spurningum. Og vegurinn framundan er eins og úthaf, þar sem þungar öldurnar leggja að landi. Hvert mun leiðin liggja? En hver er hann, sem þá kemur? Drotlinn Jesús, sem eitt sinn kom gangandi á vatninu til lærisveina sinna, þegar þeir voru hræddir og trúlitlir i vanda staddir. Hann réttir fermingarbarn- inu hönd og leiðir það yfir torfærur mannlífsins. Þú ljós, sem ávalt lýsa vildir mér, þú logar enn, — i gegnum bárur, brim og voðasker. Nú birlir senn. Og ég finn aftur andans fögrudyr, og engla þá, sem barn ég þekti fyr. (Matth. Joch.). Þangað, sem þrá hjartans er, hlýtur leiðin að liggja. Arndís Þorsteinsdóttir.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.