Kirkjuritið - 01.06.1936, Page 29

Kirkjuritið - 01.06.1936, Page 29
Kirkjuritið. Guðshugmynd nútímans. 243 Enginn veit til fulls um liina hinztu leyndardóma. Þeir verða ekki þektir fyrr en vér liöfum þekt alla hluti. Trú- arhrögðin segja þctta með þessum orðum: „Enginn hefir nokkru sinni séð Guð. Hann býr i þvi ljósi, sem enginn fær til komist“. En „sonurinn eingetni“, hinn æðsti Guðs- sonur er vér þekkjum iiefir opinberað oss það af Guði, sem vér erum fær um að skilja. Og sú opinberun nægir oss. Kristnir menn lifa í því trauti, að það sé ljóminn af dýrð Guðs, sem skein af ásjónu Jesú Krists. VIII. Skáldið Virgill segir frá því einhversstaðar i ljóðum sínum, er hann gekk út í skóginn og mætti þar gyðjunni. I fyrstu virtist honum þetta aðeins vera liversdagsleg kona, ef svo mætti að orði komast. En alt í einu rann það upp fyrir honum af því, hvernig hún framgekk í fegurð sinni, að þetta var ekki jarðar barn, lieldur guð- dómleg vera. Eitthvað óendanlega tignarlegt í fasi henn- ar og framgöngu sannfærði skáldið um þennan leyndar- úóm, að það væri guðdómleg dís, sem hann stóð and- spænis. Nú eru skáldin mjög hætt því að mæta gyðjunni á skógarstígnum. Hitti þau konu á förnum vegi, minnir hún á geispandi hundtík eða mórauða tóu. Atburðirnir Inrtast þeim í hversdagslegu ljósi. Og vísindamennirnir, sem þó veita gangi lífsins og atburðanna öðrum fremur athygli, sjá heldur ekki neitt guðdómlegt. Þeir krjú]ia niður og mæla skreflengd og hraða göngulagsins, en ein- nntt vegna þess koma þeir ekki auga á hina tíginbornu fegurð lífsins. Það eru trúarbrögðin ein, sem varðveitt hafa ])essa skáldlegu skygni hins rómverska skálds, að sjá, hve guð- úómleg er framganga lífsins á jörðunni. Og ef sú skygni yrði ahnenn, þá efast ég ekki um, að álagahamur hvers- (lag.sleikans og vesaldómsins sprytti af oss og það yrði nyr himinn og ný jörð. Benjamín Kristjánsson.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.