Kirkjuritið - 01.03.1937, Blaðsíða 10

Kirkjuritið - 01.03.1937, Blaðsíða 10
88 Magnús Jónsson: Kirkjuritið. með söknuði og þrá til kaþólska tímans með allri hans villutrú. En þó að í ófullkomleika væri, var þó fljótt farið að reyna, að flytja hingað hinn nýja söng. Það var heldur en ekki ófullkomið i fyrstu, svo að bezt er að flíka því ekki um of. En jafnskjótt og hafið er verulegt vakning- arstarf hér innan hinnar nýju kirkju, vaknar söngurinn. Það er afkastamaðurinn mikli, Guðbrandur Þorláksson, sem þar ríður á vaðið, og það svo myndarlega, að í því sem mörgu var þess langt að bíða, að annað eins starf væri unnið. Hann vekur upp til starfs þá krafta, sem til voru í landinu, og gefur út sálmabók sína með 328 sálm- um, árið 1589. Var hún ekki beinlínis ætluð til notkun- ar í kirkjum, heldur til þess að verða mönnum til upp- hyggingar utan kirkju og útrýma ljótum kveðskap, sem menn annars höfðu um hönd. Er formáli Guðbrands inskups fyrir þessari bók, sem fleirum alkunnur. En þar lýsir hann meðal annars þeirri skoðun sinni, að sálma heri að vanda að allri gerð, ekki síður en önnur ljóð, en það hafði þótt næstum að segja óguðlegt og lýsa létt- úð og spjátrungshætti, að vanda gerð sálma, því að Guðs orð væri í sjálfu sér svo fagurt, að það þyrfti ekk- ert annað skraut. Þá gaf hann einnig út grallara eða messusöngsbók og loks Vísnabókina. Eftir því sem siðbótin komst liér inn í hjörtun, kem- um einnig söngur hennar skýrar og skýrar í ljós, þar til hann brýzt fram með fullum tónum í sálmum Hall- gríms Péturssonar. Ég ætla ekki að rekja þessa sögu hér nákvæmlega, því að það er ekki tilgangur þessarar greinar, að segja neina sögu sálmakveðskaparins, hvorki almenna sögu hans né heldur sögu hans hér á landi. En eftir daga Hallgríms má segja, að ekki sé um mikinn nýjan söng að ræða fyrst um sinn. Rétttrúnaðar- stefnan var yfirleitt ekki hrifningarinnar stefna. Hún brauzt sjaldan úl í söng, heldur lét henni betur að gera

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.