Kirkjuritið - 01.03.1937, Blaðsíða 14
92
M. J.: Syngið nýjan söng.
Kirkjuritið.
í bókinni. Það má þá seinna raða þeim þar, sem þeir
eiga heima vegna efnisins, og fella niður aðra, þegar
tími virðist til þess kominn.
Um fram alt, slökkvum ekki andann! Látum ekki
form eða fullkomið samræmi í sálmabókunum hindra
frá því, að nota jafn dýrmætar Guðs gjafir eins og fagr-
ir sálmar eru, heldur hvetjum til starfa alla þá, sem til
þess hafa hæfileika, að gefa kirkju vorri nýja sálma.
Því að það er einn hinn fegursti lífsvottur, að einnig
vor kynslóð geti sungið Drotni nýjan söng!
Magnús Jónsson.
SÁLMUR.
Oss Jesús Kristur kallar
til konunglegrar hallar,
til föðurhúsa heim,
til ljóssins líknarsvæða,
til lífsins sigurhæða,
því fögnum glaðir gesti þeim.
Þeim, sem í myrkri situr,
hann sælu boðskap flytur,
um gæzku Guðs og náð,
og öllum þunga þjáðum
og þreyttum, hreldum, smáðum,
hann býður huggun, hjálp og náð.
Hann hógvær hingað kemur,
og hjá oss staðar nemur,
ó, heyrum boðskap hans.
Hann biður, laðar, leiðir
og líknarfaðm út breiðir
og heyrir andvörp aumingjans.
Til hans því huga snúum,
og hjörtun undirbúum
og hlýðum röddu hans
í he'imi harms og nauða,
en hverfum svo í dauða
og förum til vors föðurlands.
Svo gefi Guð og faðir,
vér getum sameinaðir
við náðar hástól hans
í sæluvist um síðir
þar sungið helgar tíðir —
í flokki mikla meistarans.
Vilhjálmur Ólafsson.