Kirkjuritið - 01.03.1937, Page 29

Kirkjuritið - 01.03.1937, Page 29
Kirkjuritið. Um kristniboö. 107 b°ðs fóru, færu alfarnir að heiman, horfnir ættingjum °g vinum. En samt vildi séra Hálfdán, heilsutæpur og aldraður, að 2 efnilegir synir hans færu til kristnihoðs- landa að vitna um Krist. (Einar sonur lians var um Þetta leyti við trésmíðanám í Höfn, en varð síðar hrepp- st.íóri að Hvitanesi i Ögursveit). Nærri 20 árum siðar var ungur og efnilegur prestur norðanlands, er vildi beila sér fyrir stofnun almenns kristniboðsfélags um land alt. Það var séra Gunnar Gunnarsson prófastur að Sval- barði, hróðir Trvggva Gunnarssonar bankastjóra. Séra Gunnar skrifaði i „Norðanfara“ seinni liluta vetrar 1873 eldheit livatningarorð um, að landsmenn létu Þjóðhátíðina árið eftir verða fyrst og fremst þakkar- hátið við gjafara allra góðra liluta, og þakklætið gætu menn bezt sýnt, skrifaði hann, með því að stofna alls- óerjar kristnihoðsfélag á Þingvöllum á þjóðhátíðinni •Ueð því augnamiði, að senda íslenzka menn, studda ís- lenzku fé, til ókristinna þjóða. Séra Gunnar andaðist haustið 1873 34 ára gamall, Svo að honum auðnaðist ekki að tala máli kristnihoðs- lns á þjóðhátíðinni á Þingvöllum, eins og ætlun hans Vav, en svanasöngur lians og hvatningarorð í „Norðan- tara“ munu vart gleymast, meðan nokkur kristniboðs- vinur er á landi hér. „Betri son en hann hefir lcirlcja vor ekki átt á þessari öld“, skrifaði Þórhallur Bjarnarson um hann i „Kirkjublaðið“ árið 1891. Enn liðu 16 eða 17 ár, svo að fáir eða engir mintust á kristniboðsmálið á landi hér, en um 1890 tekur séra Oddur V. Gíslason, prestur í Grindavík, að rita og ræða orn kristniboð. Hann var sem kunnugt er á undan sam- hð sinni í ýmiskonar hjargráðum bæði á sjó og landi, og hafði nokkuð kynst sjálfhoða starfi að trúmálum í Eng- landi, og sá þá, hvað ísland var langt á eftir tímanum 1 Þeim efnum. Hann vildi láta stofna alment kristniboðsfjelag, er

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.