Kirkjuritið - 01.03.1937, Side 31
KirkjuritiÖ.
Um kristniboð.
109
stöðukona þess. Síðan það var slofnað, liata verið
stofnuð þessi kristniboðsfélög: Eitt í Reykjavík, ætlað
karlmönnum, 2 á Akureyri, 1 i Hafnarfirði, 1 á Vatns-
leysuströnd og 1 í Vestmannáeyjum.
Félögin í Rej'kjavík eiga samkomubúsið Betaníu, og
trúboðsfélag kvenna á Akureyri á prýðileg't samkomu-
hús, er Zíon nefnist. Félögin í Hafnarfirði og Vest-
'Uannaeyjum bafa fundi sína i samkomuluisum K. F.
U. M. og Iv. þar, enda eru þau félög öll í nánu sambandi.
Fyrir 7 árum var stofnað Samband íslenzkra kristni-
hoðsfélaga, það er stutt af kristniboðsfélögum, nokkur-
um kvenfélögum og' einstökum trúboðsvinum um land
alt.
t ilgangur þess er, að reka kristniboð meðal heið-
higja, og efla guðsríki og kristniboðsáhuga beima fyrir,
eða hefir með öðrum orðum ytra og innra trúboð á
stefnuskrá sinni, alveg eins og þeir séra Gunnar Gunn-
arsson og séra Oddur V. Gíslason ætluðust til á öldinni
sem leið.
Samband þetta styður Ólaf Ólafsson kristniboða í
Kína, og hefir sent ýmsa starfsmenn í prédikunarferðir
öt um land. Jóhannes Sigurðsson hefir verið aðalstarfs-
niaður þess 2 siðustu vetur.
Fátt eða ekkert mun liafa tafið eins fyrir þátttöku
manna hérlendis í kristniboði á liðinni öld eins og fá-
fræðin um kristniboð samtímans.
Rúmar 9 aldir kom, að ég bezt veit, enginn kristni-
boði til íslands, er gæti sagt Islendingum frá högum
beiðingja og kristniboðsstarfi af eig'in sjón og reynd.
En árið 1909 komu hingað læknishjón frá Kína, er
l>ar höfðu verið kristniboðar 8 eða 9 ár. Læknirinn, mr.
Hayes, var amerískur að ætt, en frúin, er sömuleiðis var
læknir, var alíslenzk, Steinunn Jóhannsdóttir frá Eystra-
Miðfelli á Hvalfjarðarströnd. Hún fór 16 ára gömul
vestur um haf, en gjörðist kristniboði með manni sín-
um í Kina um aldamótin, og er því fyrsti islenzki kristni-