Kirkjuritið - 01.03.1937, Síða 36
114
Ásmundur Guðmimdsson:
Kirkjuritið.
vakti þegar á unga aldri mikla athygli á sér. Arið eftir að
liann varð kandídat í guðfræði, iilaut hann verðlauna-
pening úr gulli fyrir ritgerð um Makkaheahækurnar.
Nokkuru síðar var honum veittur utanfararstyrkur og
iðkaði hann vísindanám við erlenda háskóla 1912—191(5.
Það ár varð hann doktor í guðfræði fyrir ritgerð um
Essenana, og jafnframt guðfræðiskennari við Kaupmanna-
hafnarháskóla. Hann hefir þannig verið háskólakennari
i full tuttugu ár.
Hann er afkastamaður mikill og hefir hlotið góðan
orðstír fyrir kenslu sína og' ritstörf. Hann liefir m. a.
ritað skýringar yfir Postulasöguna, 1. Korintuhréf og
Opinberunarbókina, auk fjölda greina í vísindaleg tíma-
rit. Það er einkenni á bókum lians, hve ljóst liann ritar,
frjálst og djarft og af sterkri sannleiksást.
Hann flutti liér alls 11 háskólaerindi.
Fjögur hin fyrstu voru um lifnaðarhætti fólksins á
Gyðingalandi, en þar hafði hann dvalið eitt misseri
fyrir nokkurum árum. Erindin voru hin fróðlegustu og
vörpuðu ljósi yfir margt í Biblíunni, svo að það varð auð-
skildara en áður. Jafnframt sýndi liann fjölda af ágæt-
um skuggamyndum, m. a. frá Jerúsalem, Betlehem,
Kapernaum og Hebron.
Eitt erindið var ferðasaga frá Gyðingalandi austan
Jórdanar.
Hin sex erindin lutu öll að uppruna guðspjallanna
og afstöðu þeirra sín í milli. í iiinum fyrri var rakin
saga vísindarannsóknanna á þessu mikla vandamáli alt
til vorra daga; einkum var skýrt nákvæmlega frá kenn-
ingu Þjóðverjanna Iv. L. Schmidts, Martins Dibeliusar, R.
Bultmanns og M. Alhertz um myndunarsögu guðspjall-
anna, enda hefir sú kenning vakið mestu athvgli á síð-
ustu árum og mótað að vissu leyti skoðanir próf. Mos-
bechs sjálfs. En frá þeim skýrði hann í síðustu erind-
unum.
Þær eru í sem styztu máli á þessa leið: