Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1941, Qupperneq 6

Kirkjuritið - 01.04.1941, Qupperneq 6
124 Bjarni Jónsson: Apríl. hefir snennna vanist hollum íþróttum. Æfi alla hefir séra Jóhann verið hið mesta hraustmenni. Nú er hann orðinn gamall, níræður að aldri. En altaf í bezta skapi, síbrosandi, stöðugt á ferli, léttur á fæti og glaður í lund. Iðulega heimsækir hann kunningja og vini, en jieir eru margir. Getur j>að hugsast, að séra Jóhann eigi óvini? Hann mundi áreiðanlega ldæja að jæssari Ijarnalegu spurningu. Allir tala á einn veg um gamla prestinn. Þeir sjá þar trúna. Öldungur er séra Jóhann orðinn. En livað segir postul- inn? „Öldungar jjeir, sem veita góða forstöðu, séu hafðir í tvöföldum metum, allra helzt þeir, sem erfiða í orð- inu“. Hér er sá öldungur, sem hefir erfiðað í orðinu. Um jjað her öllum saman, að hann trúði um leið og hann talaði. Orði drottins trúir hann, og því er j>að orð í hjarta hans og á vörum lians. Af gnægð hjartans mælir munn- urinn. Ég hugsa altaf um séra Jóhann með jjakklæti og gleði. Fjórtán ára var ég af honum fermdur, fjórtán árum eftir ferminguna varð ég prestur í samstarfi með séra Jóhanni, og náði jjað samstarf yfir fjórtán ára skeið. Aldrei bar þar skugga á. Þar mætti ég föðurlegri vináttu hins trúaða prests. Ég kyntist þeim manni, er leit á jjað sem sanna aðalstign að mega vera þjónn drottins. Páll postuli segir: „Hjá mér stóð engill Guðs, sem ég' tilheyri, sem ég og þjóna“. Mér finst séra Jóhann geta sagt jjað sama, og að hægt sé að segja jjetta um hann. Hann tilheyrir Guði og þjónar honum. Séra Jóhann hefir fylgt jieirri áminningu Ritningarinn- ar, að góður þjónn Jesú Ivrists á að endurnærast við orð trúarinnar og fylg'ja góðu kenningunni. Þegar ég liugsa um jjessi orð: „Haf gát á sjálfum þér og' kenningunni“, sé ég skýra mynd af séra Jóhanni. Kenningunni hefir liann fylgt trúlega og' um leið haft gát á sjálfum sér. Ég' er viss um, að honum er óhætt úr þessu.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.