Kirkjuritið - 01.04.1941, Síða 42
160 H. T.: Boðskapurinn forni um synd og náð. April.
aður. Rúm þitt er öSrum gefið. Svo fór um Júdas. Staður hans
var látinn eftir i eyði og annar tók embœtti lians. Þú áttir kór-
ónu geymda lijá Guði, en þú vildir ekki þiggja boðið. Annar fékk
kórór.u þína.
Sagan um Balsazar og veizlu hans endar með stuttri setningu.
Hún er stutt en full af alvöruþunga: „Á hinni sömu nóttu var
Belsazar Kaldeakonungur drepinn". Þetta var hans síðasta tæk;-
færi, alveg síðasta. Og hann vanrækti það. Hann hóf þjón drottins,
Daníel, lil heiðurs og gerði liann að þriðja yfirhöfðingja í rík-
inu. En hann iðraðist ekki.
Sagan af Belsazar er saga af manni, sem fékk að heyra rausl
Guðs, en vanrækti siðasta boð hans. Þú heyrir þessa raust í dag,
ef til viil i síðasta sinn. í dag, ef Jjú lieyrir raust hans, forhertu
þá ekki hjarta þitt!
Ef til vill hefir þú skilið letrið: Þú ert veginn og léttvægur
fundinn. Vík þá ekki til hliðar! Vík heldur til Guðs! Dyrnar
standa opnar, nú. „Hæli er hinn eilífi Guð, og hið neðra eru
3ilífir armar.“ Amen.
M. ./. þýddi.
Kirkjuritið.
Það mun koma út eins og áður 9—10 sinnum á ári, alla mánuði
ársins nema ágúst og sept., um 24 arkir alls. Sökum stóraukins
kostnaðar við prentun og pappír, hlýtur verð þess að hækka upp
i 6 kr. árg. Gjaldd. 1. april og 1. okt., ef menn kjósa heldur að
borga í tvennu lagi. Afgreiðslu og innheimtu annast frú Elisabet
Jónsdóttir, Hringbraut 144, sími 4776, Reykjavík.