Kirkjuritið - 01.04.1941, Side 31
Kirkjuritið. P. S.: Lýður Guðs við grátmúrinn.
149
því fjandsamlegir, sein sjálfir vilja drotna. Þeim gagn-
ar betur boðskapur hatursins.
Fýrir nokkuru var Dr. Ivarl Bartb staddur i London.
Sagði bann þá meðal annars þetta: „Það er ætlan Hitlers
að taka æskulýðinn frá kirkjunni, svo að hún verði sam-
télag gamalmenna, er bljóti að deyja út eftir svo sem
20—30 ár. Það verður ekki að tala um neitt kristilegt
llppeldi eða mentun lijá þýzka ríkinu framvegis“. — Dr.
Bartb talar um hið „nýja guðlausa Þýzkaland“. — Hann
segir ennfremur, að öllum guðfræðiskólum játninga-
kirkjunnar bafi verið lokað af leynilögreglu. 1 stað
Prófessoranna við guðfræðideildir háskólanna hafi kom-
ið ungir menn með hina nýju skoðun á hlutunum, og
verki sínu illa vaxnir. Guðfræðistúdentunum við há-
skóla þann, er Dr. Barth kendi við áður, liefir nú fækkað
úv 400 niður í 27. — „í stað guðsdýrkunar í Þýzkalandi,"
segir Dr. Barth, „hefir nú komið þjóðernisdýrkun og
tilbeiðsla kynstofnsins“.
Já, mundi bún nú eiga við, hin spámannlega prédikun
hans Páls — þessi: „Mennirnir eru því án afsökunar,
þar sem þeir hafa ekki, þótt þeir þektu Guð, vegsamað
hann eins og Guð, né þakkað honum, lieldur gjörst hé-
gómlegir í hugsunum sínum og liið skynlausa hjarta
þeirra lijúpast myrkri. Þeir kváðust vera vitrir, en urðu
lieimskingjar. . . . Þeir liafa umhverft sannleika Guðs i
tygi, og göfgað og dýrkað skepnuna í stað skaparans,
hans, sem er blessaður að eilífu“ (Róm. 1, 20—25).
Kirkja Ivrists er nú ofsótt víða um heim. Það spáir
góðu um framtíð hennar, en hún hlýtur að halda áfram
að vera krossberinn og sá, sem grætur yfir ófarsæld
niannanna — grætur yfir þvi, að á komandi tímum
skulu þjóðir enn þurfa að magna kveinstafi sina við
grátmúr eyðilagðrar menningar og blóðstokkinna borga.
Hlæjum við eða grátum? Berum við kross? Erum við
salt jarðarinnar og ljós heimsins? Erum við bréf Krists,
þekt og lesið af öllum mönnum? Pétur Sigurðsson.