Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1941, Blaðsíða 27

Kirkjuritið - 01.04.1941, Blaðsíða 27
KirkjuritiS. Hver ræður? Hjarta mannsins upphugsar veg hans, en drottinn stýrir gangi hans. (Orðskv. 16,9). Hver er sá, sem öllu ræður? Er nokkurt afl bak við til- veruna, sem haldi öllu, sem gerist, í hendi sinni, og vill eitthvað með því öllu? Oft hafa menn spurt þessarar spurningar. Þegar alt hefir ieikið þeim í lyndi, hafa þeir spurt: Er ekki alt á valdi hiinnar eigin ráðkænsku og dugnaðar — eða: Er ekki alt tóm hending og tilviljun? Og þegar gangan hefir verið þyngri, og lífið liefir virzt iilgangslaust kvalræði, þá hafa menn líka spurt: Er nokkur sá, sem ræður? Verður ekki hinn réttláti fyrir andstreymi, en hinn guðlausi dafnar og gleðst? Hvar er réttlætið? Meistaralega liefir spekingurinn forni, er orðskviðinn niælti, svarað þessum spurningum: „Hjarta mannsins upp- óugsar veg lians, en drottinn stýrir gangi hans.“ Fyrst er bent til frjálsræðis mannsviljans. Vér gerum nætlanir fram í tímann, eftir þeirri reynslu, sem hinn liðni timi veitir. Jarðyrkjumaðurinn hagar starfi sínu eftir árs- tíðunum, og sker upp ávöxt iðju sinnar. Ferðamaðurinn uætlar dagleiðir, og kemur að kvöldi í áfanga. Þannig má í mörgum atriðum segja, að hver sé sinnar gæfu smiður, og sannarlega eru hyggindi, forsjálni og ráðkænska eiginleik- ar» sem eru ómetanlega mikils virði fvrir allan framgang vorn i þessu lífi. t*ó eru þessar gáfur ekki einhlítar. Alt getur þetta gengið eftir áætlun — en alt getur líka farið á annan veg. Hvar sem er getur rofnað kveðja liins venjulega orsakasam- hengis, fyrir sterkari, aðsteðjandi orsakir, og ef einn hlekk- Ur brestur, er niður fallinn sá árangur, sem hún átti að bera

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.