Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1941, Qupperneq 13

Kirkjuritið - 01.04.1941, Qupperneq 13
Kirkjuritið. Mennirnir við vöggu kristninnar. 131 Hér liggur einmitt vandinn að skýra og skilja Pétur °g þá menn, sem honum eru líkir. Það er ekki hægt að lesa um Pál öðruvísi en sannfærast um, að hann er for- ingi. En styrkur Péturs er miklu samsettara vandamál. Og það er náttúrlega vandamál, sem ekki verður leyst, nieðal annars vegna þess, að við höfum ekki nógar heim- ddir við að styðjast. En þó er það margt, sem við sjá- nm í fari lians, sem hlaut að lyfta honum í foringja- stöðuna. Þar er t. d. framgirni hans. Hann er eins og Páll í því, nð hann gengur æfinlega fram fyrir skjöldu. Hvenær, sem á reynir, er það hann, sem verður fyrir svörum til sóknar og varnar. Það er einurð hans og starfsþrá, sem hér lyfta honum engu síður en Páli. Þá á hann frumkvæðishæfileikann, sem einkennir hvern foringja. Hann á hugkvæmnina. Þess vegna verður hann til þess að hefjast handa um stofnun safnaðarins °g um trúboðið. Aðrir ganga þar vel og fast í spor hans. Hann er forgöngumaðurinn. Þeir eru sporgöngumenn. En Iivorugt þetta myndi endast til forustu, ef ekki væri fleira, sem til greina kæmi. Framgirninni og einurð- lnni verða að fylgja hæfileikar. Sá maður er ekki lengi látinn hafa orð fyrir öðrum, sem ekki dugar til þess. Og hugkvæmninni og frumkvæðinu verða að fylgja framkvæmdir og starfsþrek. Alt þetta hefir Pétur átt í '’ikum mæli. Hann tekur forustuna og hann heldur henni. í öllu þessu er Pétur jafnoki Páls. Þeir ganga fram, hvor á sínu sviði. Og þó að svið Péturs væri þrengra i fyrstu, þar sem liann starfaði meðal Gyðinga, þá stóð það ekki lengi, því að Pétur hefir brátt tekið að starfa uti um lönd. Það er engin leið að neita t. d. erfikenning- l,nni um það, að Pétur hafi starfað í Róm og verið for- stöðumaður þessa mikla safnaðar. A einu sviði hefir þó Páll verið miklu framar, og það var í vísindum öllum og mótun guðfræðinnar. Því miður höfum vér ekki til bréf eftir Pétur, er hliðstæð verði talin

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.