Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1941, Page 14

Kirkjuritið - 01.04.1941, Page 14
132 Magnús Jónsson: Apríl. við bréf Páls, til þess að dæma um þetta. I Nýja testa- mentinu eru tvö bréf, sem bera nafn Péturs, en langt er frá því, að nokkur vissa sé um það, livort þau eru með réttu honum eignuð. En jafnvei þótt svo væri, þá sýna þau ekki mjög mikið í þessu efni, nema þá það belzt, að þau komast hvergi í nánd við Pálsbréfin miklu í þessu efni. Fyrra liréfið, sem sennilega má telja, að sé með réttii eignað Pétri, er að visu yndislegt að trúarlegri dýpt og kristilegri fegurð, en guðfræði þess er ekki mikil, og það sem liún kemur þar fram, þá er liún næsta'lík guðfræði Páls. Hygg eg það sannast, að bæði Pétur og aðrir hafi í því efni mjög mótast af Páli, eins og eðli- legt var. En móti þessum guðfræðilega skarpleika Páls hefir Pétur átt annað, og það var liin laðandi, barnslega, glaða og örfandi persóna. Fyrir Páli liafa menn borið lotningu. En Pétur hefir bver maður elskað. Og' það er meira. Jesús hefir sameinað bvorttveggja. Lærisveinar lians bafa gerl bvorttveggja að bera lotningu fvrir tign lians og elska hann sakir kærleika bans að fvrra bragði. En ekki efast eg um, að ástin til hans hefir yfirgnæft alt annað. Hvar, sem Pétur kom, hafa menn orðið glaðir, því að altaf og alls staðar var hann sá, sem lífgaði og létti af mönnum áhyggjum og sorgum. Merkilegt er að atbuga það, að hættan á hrösunum og gönuskeiðum eldist ekki af Pétri. Postulasagan segir að vísu ekki frá slíku. Það er auðséð, að þar er ekki lieim- ild frá Pétri sjálfum, en það hefir verið bann, sem hélt slíku á lofti, og úr Markúsarguðspjalli kemst það svo inn í hin guðspjöllin. Markúsarheimildin nær á binn bóg- inn ekki til síðari hlutans af riti Lúkasar, Postulasög- unnar. En við fréttum af þessu annars staðar að. Páll segir frá því i Galatabréfinu, 2. kapítula, og ber Pétri ekki vel

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.