Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1941, Síða 19

Kirkjuritið - 01.04.1941, Síða 19
Kirkjuritið. Hallgrímur biskup Sveinsson. 137 Umbætur á slíkum bókum liafa átt erfitt uppdráttar vegna algengrar ihaldssemi presta og safnaða á því sviði, er lýtur að guðsþjónustuhaldi og kirkjulegum athöfnum. Seinna var nefnd þessi að vísu endurskipuð, en það dróst úr hömlu að fá lokið endurskoðunarverkinu vegna ann- ura aðkallandi mála, svo að það varð hlutverk eftir- inannsins, Þórhalls biskups, að koma því verki í endan- lega framkvæmd. — Eitt af þeim biskupsverkum, sem legið liöfðu niðri að mestu 15 af 23 biskupsárum dr. Péturs voru yfirreiðarnar eða biskupsvisitazíurnar, sem frá fyrstu byrjun liafa verið eitt af aðalstörfum biskupa °g vafalaust er enn eitt hið þýðingarmesta. Á þessu vildi Hallgrímur biskup ráða bót, og varð það því frá upphafi eitt af áhugamálum hans að kynnast sem bezt af eigin sjón liinum kirkjulega hag safnaðanna víðsvegar um land, enda rækti hann það starf með slíkri alúð, meðan heilsan leyfði, að segja má, að bann þar liafi sett met, er hann á 13—14 árum fékk vísiterað alt að 200 kirkju- staði, en slíkt liafði enginn fyrirrennara bans gert frá bví, er einn varð biskup yfir öllu landi voru. Það verður þannig sízt með sanni sagt um Hallgrím úiskup, að hann ekki sýndi í verki góðan vilja sinn á að •'eynast kirkju landsins skyldurækinn tilsjónarmaður, með einlægum áhuga á að láta sem mest gott af sér leiða 1 stöðu sinni, enda eru embættisbækurnar frá biskuijstíð l'ans um það ólygnastur vottur. Því að Hallgrímur biskup var alla tíð skrifstofumaður mikill, og því fór svo fjarri, að bann kastaði til þess hluta embæltisstarfsins liönd- unum, sem teljast til skrifstofustarfa, að bitt mun sönnu nser, að prestum liafi einatt fundist bann full-nákvæm- nr í skrifum sínum um sumt það, er prestar töldu til smávægilegra efna. En biskup vildi, að þeir, sem undir hann voru gefnir, sýndu ekki síður vandvirkni i þvi smá- vægilegra, sem embættisskyldan bauð, en í hinu, því að sjálfur var hann svo gerður, að hann taldi sér jafnskylt að sinna hinu smávægilega, sem embættinu tilheyrir, sem

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.