Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1941, Blaðsíða 30

Kirkjuritið - 01.04.1941, Blaðsíða 30
Apríl. Lýður Guðs við grátmúrinn. í páskavikunni í fyrra var útvarpað einhverjum hin- um átakanlegasta söng, er ég nokkuru sinni liefi hevrt. Það voru kveinstafir Gyðinga við grátmúrinn í Jerú- salem. í nítján aldir hefir þessi hrausta, gáfaða og kyn- sæla þjóð, þessi „vesæla, hrakta og huggunarlausa“ þjóð sungið kveinstafi sína við grátmúra útlegðarlífs hennar. Hafi allar þær hörmungar hlasað við auga sjá- andans mikla við innreið hans í höfuðhorg þjóðarinnar, þá undrast enginn, þótt hann gréti yfir Jerúsalem. Enn einu sinni er kirkja Krists að verða krossberi og þjáningakirkja á jörðinni. Enn einu sinni er harma- kveinið mikla endui'vakið við grátmúrinn. Enn einu sinni hafa sjáendur og guðsmenn ástæðu til að gráta yfir ófarsæld manna. Enn einu sinni fer hoðskapur hat- ursins sigurför meðal þjóðanna. Getum við dansað og leikið okkur, étið, drukkið og verið glaðir, þegar bræður vorir eru ofsóttir og líða þján- ingar víðsvegar um heim? Getum við komist hjá því að gráta með þeim, og gráta yfir ófarsæld þjóðanna. Þar er nú víða ófagurt um að litast. Hjá voldugum þjóðum er ýmist verið að reyna að afmá kristindóminn, afmá Gyðingana, afmá liugsana og atliafnafrelsi. Á öðrum stöðum geisa svo hin liryllilegustu stríð, þar sem skvld- ar þjóðar og hræður reyna að afmá hver annan. Yið þetta bætast svo viðskiftaörðugleikar, atvinriuleysi, á- fengisböl og önnur vandræði. Fagnaðarerindi Krists vinnur gegn ágirnd og auðsöfn- un. Það er því skiljanlegt, að menn, sem auðgast vilja á áfengissölu, vopnaframleiðslu eða öðru slíku, ljái því lítið fylgi. Fagnaðarerindi Krists eflir bezt samúð og hræðralag manna á jörðu, þess vegna gerast þeir menn

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.