Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1948, Blaðsíða 12

Kirkjuritið - 01.01.1948, Blaðsíða 12
10 KIRKJURITIÐ „Hann er eigi fjarlægur neinum af oss, því að í honum lifum, erum og hrærumst vér.“ En þaö er líka vandi að vera svo nálægur GuÖi. Fyrir augliti hans dylst engin ófögur hugsun; í hans kærleik þolist enginn hjartakuldi, — enginn skuggi. Það er vandi að lifa. Nema fyrir ung og saklaus börn. Hættusvæði lífsins liggur fyrir utan bernskunnar blóma- garð. Skyldu ekki jólin vera svo lieilög jól meðfram af því, að þá eru flestir hæfari en ella til að koma aftur inn í þann garð? En að jólunum loknum er aftur út úr garðinum gengið — garði hreinleikans. — Nýtt ár rennur upp, með ný áform, nýtt framtak, nýtt kapphlaup um lífsins ytri gæði, nýjan metnað og nýtt valdabrask. Og guðsbarnið er í of mörgum í hversdagsfötunum til næstu jóla. En á meðan bíður Guð, eftir batnandi bömum, batnandi Islands þjóð. Hann bíður eftir mér og þér, eins og víngarðs- herrann í dæmisögunni lét það eftir víngarðsmanninum, að hið arðlausa tré fengi enn að standa þetta árið. — Enn mun hinn heilagi. höfundur alls sem er, Guð vors lands, krýna hið ný-upprunna ár með gæzku sinni. Enn mun fagur gróður drjúpa af heiðalöndunum, og hæðirnar girðast fögnuði. Enn mim lífið skarta í blómi vallai’ins og í blíðu brosi barnsins. Og enn munu andvþrp lífsþreyttra jarðarbarna stíga til hæða, eins og liðna árið leið út í bláma eilífðarinnar. Enn munum vér greina hjartslátt Guðs bak við allt lífið, ef vér hlustum vel. Enn munum vér una lífinu bezt „við yl og kraft hins góða.“ Gleymum því öllu, sem að baki er, nema góðleikans dýru perlum, og söfnum sem flestum slíkum á árinu uýja, til að færa þær jólabarninu, Jesú Kristi,.á næstu jólum. Þær gilda einnig — og þær einar — þótt vér höfum haft vista- skipti fyrir næstu jól. Hvíli svo Guðs heilaga auglit yfir oss öllum og yfir fslands þjóð, á árinu nýja. Hvílum í hendi hans. Störfum að vilja hans. Biðjum til hans. Ólafur Ólafsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.