Kirkjuritið - 01.01.1948, Blaðsíða 17
DR. THEOL. VALDIMAR BRIEM 15
vegna þess, að ég telji mig hafa til þess meiri hæfileika eða
kunnugleika en ýmsir aðrir hafa, nema síður sé. Hitt er
heldur, að mér hefir frá æsku þótt vænt um hann og á
honum þakkarskuld að gjalda, bæði vegna persónulegra
kynna snemma á ævi minni, og vegna þeirrar blessunar,
sem ég hefi notið af verkum hans í trúarlífi mínu og prests-
starfi. Og enn er það, að ýmsir vinir hans hafa hvatt mig
til þess. Þá er ég hefi fundið ylinn og ástúðina í orðum
þessara vina hans um sinn gamla fermingarföður og sóknar-
prest, hefi ég þótzt skilja, hvílík hamingja það er, að geta
sér þannig lof og líknstafi, ávinna sér gott mannorð og
fagra minningu. Valdimar Briem á sér vígðan reit virð-
ingar, kærleika og þakklætis í hjörtum þeirra, sem hann
hefir frætt og upplýst, huggað, glatt og styrkt með orðum
sínum og áhrifum. Úr þeirra flokki verða þessi minningar-
orð töluð, þótt þau Verði af mörgum ástæðum miður valin
og vönduð en vera ætti.
I.
Um miðja síðustu öld bjuggu á höfuðbólinu Grund
í Eyjafirði hjónin Ólafur timburmeistari Briem, Gunn-
laugsson Briems sýslumanns Eyfirðinga, og Dómhildur
Þorsteinsdóttir. Þar fæddist Valdimar Briem 1. febrúar
1848. Bræður Ólafs timburmeistara og föðurbræður séra
Valdimars voru þeir Eggert Ólafur Briem sýslumaður, faðir
Eiríks Briems prófessors og þeirra systkina, og Jóhann
Kristján Briem prófastur í Hruna. Er öll sú ætt mjög kunn.
En Dómhildur kona Ólafs timburmeistara og móðir Valdi-
mars var Þorsteinsdóttir frá Stokkahlöðum Gíslasonar,
Móðurafi Þorsteins á Stokkahlöðum var séra Þorsteinn
Ketilsson prófastur á Hrafnagili, lærisveinn Jóns biskups
Vídalíns í ræðugjörð og klerklegum listum, og einn af
merkustu prestum og menntuðustu á Islandi um sína daga.
Var séra Þorsteinn á Hrafnagili sá prestur norðanlands,
sem Ludvig Harboe taldi einna hæfastan til biskupsembætt-
is að Hólum, en séra Þorsteinn var ófáanlegur til að takast