Kirkjuritið - 01.01.1948, Page 85
Aðalfundur Prestafélags íslands.
Aðalfundur Prestafélags íslands 1947 var haldinn í kennslu-
sal guðfræðideildar Háskólans 30. sept. og 2. okt. Sóttu hann
Una 80 andlegrar stéttar menn og guðfræðinemar, og mun þetta
fjölsóttasti Prestafélagsfundur frá því er félagið var stofnað.
Áður en fundurinn hófst, fór fram guðsþjónusta í Háskóla-
kapellunni, og prédikaði séra Garðar Svavarsson út af niður-
lagsorðum Matteusarguðspjalls.
Formaður félagsins, Ásmundur Guðmundsson, setti fund-
inn og minntist látinna félagsbræðra og flutti stutt ávarp.
I lok þess hvatti hann félagsmenn til að stofna Útgáfusjóð
Prestafélags íslands í tilefni af aldarafmæli Prestaskólans.
Skyldi þeim sjóð algerlega haldið út af fyrir sig og eingöngu
varið til að gefa út valdar bækur. Brugðust fundarmenn svo
vel við þessari málaleitun, að þegar söfnuðust 2—3000 kr.
Því næst skýrði formaður frá störfum Prestafélagsins á
liðnu ári og gat m. a. bókanna tveggja, er nú kæmu út að til-
hlutun þess, Islenzkra guðfræðinga, er Leiftur gæfi út, og
Nýrra hugvekna í útgáfu ísafoldar. Væri hvor tveggja útgáf-
an mjög vönduð.
Að loknum venjulegum aðalfundarmálum flutti séra Árni
Sigurðsson erindi í kapellunni um kirkjuþingið í Lundi og
kirkju ísland.
Aðalmál fundarins var: Nokkrir þættir í starfi kirkjunnar
á næstu árum. Hófust um það umræður síðara hluta dagsins.
JFyrst var rætt um safnaðarblöð. Séra Jón Kr. ísfeld var
málshefjandi. Hann skýrði frá reynslu sinni í þessu starfi og
tilgangi og kvað það efalausan ávinning hverjum presti að
halda úti safnaðarblaði. Umræður urðu mjög f jörugar og hmgu
á einn veg um það, að prestar skyldu hefjast handa í þessum
efnum þar sem aðstæður væru góðar.
Þá flutti sér Pétur Sigurgeirsson framsöguerindi um kvik-
myndir í þjónustu kirkjunnar. Gjörði hann grein fyrir áhrif-
um kvikmynda á mútímamenn og taldi mjög tímabært, að
tekið yrði að sýna kristilegar kvikmyndir í kirkjunum eða