Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1954, Page 8

Kirkjuritið - 01.01.1954, Page 8
6 KIRKJURITIÐ anna um búning, eins og trén um börk. Skapari vor hefir sýnt oss það, að hann vill sem mesta margbreytni, svo að ekki eru jafnvel tvö laufblöð nákvæmlega eins í öllum skógum veraldarinnar, hvað þá tveir menn í kynslóðum kynslóðanna. Þannig er einnig mest auðlegð lífsins. En engu að síður eigum vér að vera einhuga um markmið kirkjunnar í þjóðlífi voru, það er „Faðir vor“ lýsir. Island á að vera Guðs ríki, íslenzka þjóðin Guðs þjóð. Að því ber oss öllum að vinna saman, kirkjunnar mönnum. Ein er vor ættjörð, einn vor himinn, ein vor ósk og trú, þegar á herðir. Skoðanamunur má á engan hátt standa fyrir samvinnu né samtökum. Höldum ótrauðir áfram að ræða og rita um skoðanir vorar af rökum og reynslu, en gjörum það um fram allt með bróðurhug. Þá eigum vér ráð á því að vera ósammála. Þá verður það ekki til tjóns, heldur til góðs. Átök fylgja jafnan þróttmiklu, andlegu lífi, og svo hefir það verið frá upphafi vega kristindómsins. En þá verða þau til niðurrifs, er þeim fylgir kuldi, skilningsleysi, úlfúð, enda eru þau þá beinlínis orðin ókristileg. Kirkjan má aldrei líkjast fúnum, klofnum fauski, engum til gagns, heldur þróttmikilli björk, sem breiðir laufgað lim sitt yfir þjóðina og býður henni allri og þá sérstaklega æskunni athvarf og skjól. Bróðurleg samvinna að einu marki kirkj- unnar tryggir henni vöxt og þrótt og einingu að baki ólíkum skoðunum. IV. Og kirkjan þarf að endumýjast, boðskapur hennar í orði og verki fyllast nýju lífi. „Vér eigum ekki nóg af eldvígslu andans,“ skrifar prest- ur einn. „Ræða vor er oft aðeins fyrirlestur, guðfræðilegt erindi eða rétt skólastíll. Hún er ekki sá boðskapur eða

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.