Kirkjuritið - 01.01.1954, Qupperneq 32
30
KIRKJURITIÐ
flæða yfir alla tilveruna, nýr dagur, miklu skærari bjart-
asta júnídegi, rísa yfir dimma, fátæklega veröld.
Þannig dreymir stórt skáld.
En er þetta nokkuð annað en það, sem Kristur boðaði
að koma myndi, ef menn gengju kenningu hans á hönd
og fetuðu hinn mjóa veg?
Nýtt ár hefir lyft tjaldi frá sviði nýrrar heimssögulegrar
sýningar. Vér verðum, bæði einstaklingar og þjóð, þátt-
takendur ásamt öðrum í þeim leik.
Hvort viljum vér heldur leggjast á sveif með myrkrinu
og hatrinu eða brjótast inn í berg heiðninnar eftir lýsi-
gullinu, sem varpa mun ljóma yfir vegu hins nýja árs?
Hver dagur, sem rís, gefur svar við þeim spurningum.
Eftir því, sem svörin ráðast, kann alls kyns hrun að vera
framundan, eða ný, stórkostleg sókn í viðreisnarátt.
Páll Þorleifsson.
Barnastarf á Dalvík.
Á Dalvík er rekið dálítið kristilegt barnastarf á vegum
Kvenfélagsins og kirkjunnar. Presturinn kemur og talar á
samkomum þess, þegar hann getur, en annars stendur Vald. V.
Snævarr fyrir samkomuhaldinu. Samkomurnar eru haldnar í
barnaskólahúsinu. Starfið virðist vel metið, og vel sækja börn-
in, einkum yngri börnin. Barnaguðsþjónustur hefir presturinn
einstaka sinnum. I öðrum sóknum kallsins heldur presturinn
einstaka sinnum æskulýðssamkomur, einna oftast þó í Tjarnar-
sókn. Konur þar hafa mikinn áhuga á æskulýðsstarfi, og er því
reynt að koma á móts við óskir þeirra eftir beztu getu. En oft
hindrar óveður, ófærð og annríki. Aðalstarfstíminn meðal barna
og unglinga er veturinn. Á sumrin eru þau margvíslega flækt
inn í starfslífið og sólgnust í útiveru. Viðleitnina til að starfa
fyrir og með æskulýðnum vantar ekki, en erfiðleikarnir eru
miklir og tíminn lítill.
Úr bréfi.