Kirkjuritið - 01.06.1954, Blaðsíða 6

Kirkjuritið - 01.06.1954, Blaðsíða 6
244 KIRKJURITIÐ þessir menn reyndu kraft andans, heldur einnig í daglegu lífi, eins og postulinn, sem svo var á valdi hinnar himnesku handleiðslu, að hún tekur blátt áfram í taumana og ræður ferðum hans. Af lindum þessarar reynslu jusu menn kraft. Þeir lifðu í jarðneskum hversdagsheimi, héldu áfram að eiga þar baráttu sína og erfiðleika, vonbrigði sín og vonafylling, en jafnhliða fundu þeir hinn ójarðneska veruleika yfir- skyggja sig, fundu, að jafnhliða voru þeir þegnar í heimi andans, og þess vegna gat andinn leitt þá á refilstigum þessa hatursfyllta heims, þar sem blóðugt píslarvætti varð þrásinnis sigursveigur hinna göfugu og góðu. Jörðin var veruleikur. Á Golgata hafði hún drukkið blóð Drottins, og hún geymdi þyrna í hverju spori handa þeim, sem vildu lifa lífi Krists. En jörðin var ekki eini veruleikinn. Yfir þeim hvelfdist himininn, sem lausnari þeirra lifði nú í, og daglega var heilagur andi að bera þessum æðra heimi vitni, ýmist með undrum, kraftaverkum og opinberunum, eða með þeirri hljóðlátu en öruggu handleiðslu, sem þeim var gefin með sérhverri nýrri dagsbrún, er upp á him- ininn færðist. Þannig var líf hvítasunnumannanna. Frá þessum dýr- legu vordögum kristninnar eru liðnar 19 aldir, — og hvað er nú? Nú eigum vér flóknar útskýringar á því, hver heilagur andi sé, svo flókin guðfræðikerfi, að fáir kunna full skil á þeim. En þekkjum vér kraft andans eins og frumkristnin þekkti hann? Erum vér oss daglega meðvitandi um þennan guðlega veruleika? Er nokkur nútímaferðasaga skráð á sama hátt og þetta brot úr ferðasögum Páls: „Og þeir fóru um Frýgíu og Gaiataland, en heilagur andi varnaði þeim að tala orðið í Asíu. Og sem þeir voru komnir að Mýsíu, gjörðu þeir tilraun til að fara til Bitýníu, en andi Jesú leyfði þeim það eigi“?

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.