Kirkjuritið - 01.06.1954, Qupperneq 21
Afmœlisdagar.
Björn Magnússon, prófessor, fimmtugur.
Björn Magnússon er fæddur á Prestsbakka á Síðu 17. maí
1904, sonur séra Magnúsar Bjarnarsonar, prófasts og konu
hans, Ingibjargar Brynjólfsdóttur.
Hann varð stúdent úr Menntaskólanum 1924, en stúdentar
þessa árs fóru fleiri í guðfræða-
deild Háskólans en dæmi voru til,
eða alls 17. Kölluðu þeir sig Vig-
inti quattuor og settu nýjan og
fjörlegan svip á guðfræðadeild
meðan þeir voru þar, gáfu meira
að segja út allmikið tímarit,
Strauma. Kandidat varð hann ár-
ið 1928 og gerðist þá fyrst aðstoð-
arprestur föður síns, en næsta ár
prestur að Borg á Mýrum og síðar
prófastur í Mýraprófastsdæmi.
Þegar próf. Sigurður P. Sívertsen
lét af kennaraembætti í guðfræða-
deild, var séra Björn settur dósent.
Var síðar keppt um þetta embætti
og hlaut séra Björn sigur í þeirri
keppni, en ekki veitingu fyrir embættinu. f það var hann
skipaður nokkrum árum síðar og svo prófessor á tilskildum
tíma.
Prófessor Björn er mikill áhuga- og starfsmaður og hefir
ritað allmikið. Má einkum nefna hinn mikla og vandaða Orða-
lykil að Nýja testamentinu. Hann hefir og starfað mikið að
bindindismálum og verið stórtemplar um nokkur ár.
Kona hans er Charlotte Kristjana Jónsdóttir og eiga þau
atta böm, sex syni og dætur tvær.