Kirkjuritið - 01.06.1956, Page 23
ÁVARP TIL ÍSLENZKRA PRESTA
261
Gert er ráð fyrir ferðalagi, sem ríkisstjórn og Reykjavíkurbær
bjóða til. Forseti íslands tekur á móti þátttakendum prestafund-
arins á Bessastöðum, og hefir hann óskað eftir því, að helgistund
verði í kirkju staðarins. Biskup býður til veizlu og KFUM til
kaffisamsætis eitthvert kvöldið.
Allir opinberir aðilar hafa verið boðnir og búnir til að veita
liðsinni sitt. Meðal annars veitir ríkið Prestafélaginu fjarhags-
legan stuðning, sem oss ber að þakka. — Það skal tekið fram,
að gert er ráð fyrir, að prestskonur séu með í ferðalaginu og
Veizlunum, og eru þær að sjálfsögðu velkomnar á fvrirlestrana,
er þær óska.
4. Gildi prestafundarins. — Fundir sem þessir eru í raun og
''eru liður í starfi, sem nú er unnið í heiminum á mörgum svið-
um menningarmála, til þess að efla kynningu og samstarf milli
þjóða, stétta og starfsgreina. ísland á einskis urkosta annars en
að vera með í slíku samþjóðlegu samstarfi, svo framarlega sem
vér viljum, að sjálfstæði vort sé í heiðri haft. Og að þvi er snert-
h' kirkjuna sérstaklega, er einingarhreyfingin (oikumeniska hreyf-
higin) blátt áfram lífsnauðsyn. Undirstaða hennar hlytur alltaf
;*ð vera kynning, bæði kynning einstaklinganna innbyrðis og
gagnkvæm þekking á hugsunarhætti, guðfræðistefnum, starfs-
háttum o. s. frv. Einn samþjóðlegur prestafundur er þarna a við
lestur fjökla bóka, þótt ekki sé á annað litið en þann fróðleik,
er þar veitist.
Nú vill svo til, að fáir íslenzkir prestar hafa átt þess kost að
sækja norræna prestafundi, og sumir í vorum hópi eru jafnvel
miklu kunnugri kirkjulífi annarra landa, t. d. Breta, Ameríku-
manna og Þjóðverja. Er oss því fullkomin nauðsyn að nota þetta
hekifæri til þess að komast í nánari tengsl við norrænar kirkjur.
Við þetta bætist, að hinir norrænu bræður vorir hafa nú sér-
stakan áhuga á því, fremur en nokkru sinni fyrr, að kynnast
islenzku kirkjulífi. íslenzkar bókmenntir og íslenzk menning
hefir verið rædd mikið nú í heimsblöðunum og þó fyrst og fremst á
Norðurlöndum. í sambandi við stjórnmál og viðskiptamál ber nú
0rðið allmikið á íslandi. Og þegar bræður vorir handan við hafið