Kirkjuritið - 01.11.1958, Blaðsíða 21
KIRKJURITIÐ
403
Þessir fundir báðir voru afar fjölsóttir, með mikinn svip hinna eldri
presta, sem fyrr meir höfðu sumir hverjir staðið í fylkingarbrjósti fé-
lagsins, en einnig með virkri þáttöku margra nýrra manna. Og var þar
efalaust glæsilegastur fulltrúi séra Fríðrik J. Rafnar, ]sá að vísu vanur
og þekktur fundarmaður, öllum snjallari að greiða úr flóknum málum og
þar, sem í nokkurt óefni virtist komið.
Erindaflutningur var og með miklum ágætum á þessum fundum séra
Hálfdáns, og hefir hann kunnað vel eftir að leita, þar sem góðs var von
um slikt. Voru þá oft sumir fyrirlestranna fluttir í heyranda hljóði al-
menningi, og þótti skemmtileg tilbreytni á þeim timum.
Þannig var húsfyllir í samkomuhúsinu á Akureyri 1929, er séra
Tryggvi Kvaran flutti þar erindi sitt um „trú og þekking". Og mikið
fjölmenni hlýddi messu og ræðuflutningi prestanna í Húsavíkurkirkju
sumarið 1932. Um það skrifaði sóknarpresturinn, séra Knútur Arngríms-
son, litlu síðar: „Kirkjan var troðfull af fólki — um 400 manns —, þótt
á virkum degi væri, og mátti þetta kallast all-merkilegur kirkjulegur við-
burður hér í sókn, að hér kæmi 17 prestar í einu“. En svo hygg ég, að
víðar hafi þótt, þar sem Prestafélag Hólastiftis hélt fundi sína, að það
hafi löngum vakið nokkra athygli út í frá og verið talið til tíðinda.
Snemma árs 1937, eða 7. marz, bar að andlát séra Hláfdáns vígslu-
biskups, eftir alllanga vanheilsu, og légu þá mjög niðri fundir Presta-
félagsins þau misseri. En þess er þó að gæta, að æði þróttmikið félags-
starf var þá viða vakið innan íslenzku kirkjunnar og. einnig í Norður-
landi. Guðbrandsdeild, skipuð skagfirzkum og húnvetnskum prestum,
vann ötullega, og höfðu þar lengst mesta forgöngu séra Guðbrandur
Björnsson og séra Gunnar Árnason á Æsustöðum. En á Akureyri hófust
fundir norðlenzkra presta og kennara, og munu þeir Pétur regluboði Sig-
urðsson og séra PálL Þorleifsson hafa verið aðal-hvatamenn að þeim sam-
tökum, sem um árabil hleyptu miklu fjöri í andlegt líf og kirkjulega
starfsemi norðan heiða.
Þá komst og hugmyndin um almennan kirkjufund í framkvæmd sum-
arið 1934, mest fyrir atbeina Gísla Sveinssonar, þáverandi sýslumanns,
og átti Hólastifti þar góðan fulltrúa árum saman, í stjórnamefnd þessara
funda, séra Fríðrík J. Rafnar.
Og undir handleiðslu hans var, haustið 1936, haldinn fjölsóttur kirkju-
fundur Norðlendingafjórðungs, eins og það var kallað, á Akureyri. Var
þá prestakallamálið svonefnda á döfinni, og mikill hugur í kirkjunnar
mönnum víða um land að fá afstýrt frekari prestafækkun, og því boðað
til slikra funda í öllum landshlutum.