Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1961, Blaðsíða 28

Kirkjuritið - 01.02.1961, Blaðsíða 28
74 KIRKJURITIÐ Hér vildi ég aðeins bera sannleikanum vitni um eitt atriði. Mig undrar það oft, þegar talað er um bannlagatímann, eins og þá hafi ekki verið drukkið neitt minna en áður og eftir. Svo hafi mikið verið bruggað og smyglað. Þetta er hin megn- asta fjarstæða, sem engum er til góðs að halda fram. Ég flutt- ist sem prestur norður í Húnavatnssýslu haustið 1925 og næstu tíu—fimmtán árin bar það varla við, að ég sæi nokkurn tíma ölvaðan mann þar í héraðinu. Naumast einu sinni í réttum. Hins vissi ég aftur á móti dæmi, að bændur, flestir rosknir, höfðu hætt að drekka, þegar bannið var sett, þótt þeim þætti sopinn góður, og voru stakir bindindismenn upp frá því. Þetta er sannleikurinn um þessi mál í A.-Húnavatnssýslu, og mun óhætt að fullyrða, að sama mætti segja um a. m. k. flestar sýsl- ur aðrar. Það er því rétt, að það komi hér fram, hvað sem annars má segja um algert vínbann eða sölu áfengis. Gunnar Árnason. Saxnaskirkja í Svíþjóð.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.