Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1961, Page 32

Kirkjuritið - 01.02.1961, Page 32
78 KIRKJURITIÐ „Skrúð“. En einnig Núpsskólinn, vermireitur séra Sigtryggs og samstarfsmanns hans, Björns Guðmundssonar. Lækir falla margir niður hlíðar Vestfjarða, víða falla þeir um land, er Núpsbræður, séra Sigtryggur og Kristinn, efldu að gróðri. Á vori hverju syngja þeir með sama lagi og þeir sömdu líf sitt við og ljóð þess, þeir frændurnir, gestirnir góðu af Norður- landi: Séra Sigtryggur og Kristinn Guðlaugssynir og Jónas Tómasson. Æskulýðurinn sækir fast íþróttakeppni á leikvangi ísafjarð- arkaupstaðar fast við sjúkrahúsið. Frú Hjaltlína Guðjónsódttir á þar sína síðustu vökunótt yfir manni sínum. Sjúkrahússvegg- urinn virðist skilja að tvo heima, er aldrei snertist framar. Það morgnar. Nær 97 æviár eru á enda. — Grasið á sjúkra- hústúninu er einkennilega fagurgrænt eftir döggfall næturinn- ar, er sól nýs dags skín á það. Og það er eins og það hafi hækkað og vaxið þessa andlátsnótt. Þan minnir á, að störf ræktunarmannsins stöðvar ekki dauðann. Lífið sigrar og þeir lifa, sem því þjóna. Faðir séra Sigtryggs Guðlaugssonar stóð oft úti um nætur, þegar heiðskírt var og horfði á gang himintungla. Það var minnzt á Grundtvig við upphaf þessa máls. Séra Sigtryggur er einna merkasti lærisveinn hans á íslandi. Þannig lýkur sálmi þeim, er tilgreint var upphafið að (næst- síðasta versið): Stjarna veitt oss einnig er, og ef henni fylgjum vér hennar leiðarljósið bjarta leíða um jarðarhúmið svarta :|: oss mun loks til Lausnarans. :|: Það er stormur og hríð. Maður er á ferð. Hann fer hratt yfir. Hann beitir þannig stórum staf, er einn nemenda hans og sókn- arbarn hefur smíðað, að það sést varla, að fætur hans snerti snjóbreiðuna. Ratvísi hans er óbrigðul Það sér ekki til loft,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.