Kirkjuritið - 01.02.1961, Blaðsíða 35
KIRKJURITIÐ
81
eru frá því um miðja 11. öld, og engin kirkja, nema þá þessi
eina, er byggð eftir herhlaup Valdemars Atterdags árið 1361,
en þá lauk hinni miklu kirkjubyggingaröld á eyjunni. Sveita-
kirkjurnar komust hjá eyðileggingu, er hinn danski her flæddi
eins og holskefla yfir landið, þótt hann hafi sjálfsagt látið
greipar sópa um dýrgripi þeirra. Bændaherinn var ofurliði bor-
inn, og íbúarnir urðu fyrir þungum búsif jum, eins og þessi forna
aletrun ber vott um: „Bændabýlin eru brunnin, fólkið fellur
sigrað, kveinandi fyrir sverðinu.“ Samanlagt tölugildi bókstaf-
anna í áletrun þessari er 1361, en það er hið örlagaþrungna
ár í sögu Gotlands alls.
Sveitakirkjurnar mörgu hafa staðizt umrót aldanna og gnæfa
enn í tígurlegri ró og óhagganlegri reisn. Ekki hefur þurft að
byggja nýjar kirkjur, því að þær gömlu hafa dugað Gotlend-
ingum vel fram á þennan dag. Þó hefur á allra síðustu árum
verið hafinn undirbúningur að kirkjubyggingum í nýjum byggða-
hverfum, og sennilega hefur ný kirkja verið vígð á síðasta
ari (1960) í bænum Slite, sem hefur vaxið síðustu árin vegna
sementsverksmiðju, sem þar er rekin, en þá eru liðin rétt 700
ar, síðan sóknarkirkjan í Othem þar í grenndinni var vígð.
Gotland er eitt af þrettán biskupsdæmum sænsku kirkjunnar
°g það minnsta. Núverandi biskup er Algot Anderberg og bisk-
npsfrúin er yngsta dóttir Nathans Söderbloms, erkibiskups í
Uppsölum, frægasta kirkjuleiðtoga Svía á seinni öldum. Um
skeið störfuðu þrír biskupar í sænsku kirkjunni, sem allir voru
tengdasynir Söderbloms. Það var Brilioth, erkibiskup í Uppsöl-
uni, Runestam, biskup í Karlstad í Vermalandi, auk Ander-
hergs biskups í Visby. Nýverið hefur biskupinn lokið við að
visitera 88 söfnuði af þeim 92, sem eru á eyjunni. Hefur skýrsla
hans margt athyglisvert að geyma um kirkjulíf á Gotlandi.
Prestssetrin eru flest gömul, en vel við haldlið. Enginn prestur
stundar lengur búskap, heldur eru allar prestssetursjarðirnar
teigðar. Munu nú vera liðin 10 ár, síðan síðasti presturinn í
sænsku kirkjunni hætti búskap. Söfnuðunum þykir mjög vænt
um hin fornhelgu musteri og leggja mikið að sér til að endur-
nyja þau. Á þeim 9 árum, sem Anderberg hefur verið biskup
a Gotlandi, hefur hann endurvígt 25 kirkjur, sem hlotið hafa
meiri háttar endurbætur. Prestar biskupsdæmisins eru 35.
Biskupinn er einnig sóknarprestur eða dómprófastur við dóm-
6