Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1961, Blaðsíða 41

Kirkjuritið - 01.02.1961, Blaðsíða 41
KIRKJURITIÐ 87 þessu öfugt farið. Þar væri tertan borið fram fyrst. Þarna voru fyrst bornar fram smákökur og bollur, og áttu menn að taka af öllum tegundum í einu. Var komin álitleg hrúga á diskinn hjá mér, og var þó tertan eftir. Horfði ég angistaraugum á félaga minn, en hann virtist engu kvíða. Gerði hann litlu einu skil af kökunum. í fávizku minni hámaði ég sem mest í mig, því að mér gat ekki komið til hugar, að gestirnir tækju afgang- inn með sér heim í litlum pappírspokum, sem gestgjafar létu þeim í té. Sagði sóknarpresturinn, að þessi siður kæmi sér vel, þegar hann þyrfti að fara í margar vitjanir. Þá tæki hann heim með sér þær kökur, sem hann gæti ekki torgað, og skildi þær eftir í eldhúsinu. Mér varð hugsað til gamla prestsins heima á Islandi, sem sagði mér frá því, að hann hefði drattazt heim að loknum örfáum húsvitjunum á fyrsta prestsskaparári sínu sjúkur af kaffidrykkju og kökuáti. Meira þoldi hann ekki. Gott hefði verið fyrir hann að taka eitthvað af kökunum með sér heim í pappírspokum. Á síðari árum hafa sjálfsagt margir íslendingar komið til Gotlands, perlunnar í Eystrasalti. Þangað ættu menn auðvitað helzt að fara á sumrin, þegar allt er í fegurstum skrúða. Ég er viss um, að margir, sem eiga eftir að koma þangað, muni hrífast af náttúrufegurðinni og dást að listaverkum fortíðar- innar, en þó umfram allt virða og bera hlýjan hug til íbúanna, hinna vingjamlegu og dugandi Gotlendinga. Magnús Guðmundsson, Setbergi. Þegar þú lest Ritninguna, eru það ekki torráðnu staðirnir, sem þig skipta höfuðmáli, heldur þeir, sem þú skilur; þeim átt þú tafarlaust að hlýðnast. Þótt það væri ekki nema ein einasta grein, sem þú skild- ir, þá ber þér fyrst af öllu að fara eftir henni, en ekki setjast niður og brjóta heilann um það, sem þú botnar ekki í. Þér er fengið Guð.sorðið til að breyta eftir því, en ekki til þess að þú spreytir þig á að skýra torskilda staði ritningargreinar. .— Saren Kierkegaard.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.