Kirkjuritið - 01.02.1961, Qupperneq 49
KIRKJURITIÐ
95
Innlendar fríttir.
Gjöf til stofnunar ellih&imilis. Forstjóri Elli- og hjúkrunarheim-
ilisins Grundar, hr. Gísli Sigurbjörnsson, hefur afhent biskupi íslands
sparisjóðsbók með 5 þúsund króna innstæðu. Fylgir með sú beiðni,
að þessi sparisjóðsbók verði síðar afhent þeim söfnuði í landinu, sem
fyrstur hefst handa um stofnun elliheimilis. Víða eriendis hafa söfn-
uðir stofnað elliheimili og reka þau á sínum vegum. Eru t. d. Danir
mjög framarlega í þessum efnum, og er einn helzti forgöngumaður
þeirra nú í líknarmálastarfi á vegum kirkjunnar hinn nýskipaði
Kaupmannahafnarbiskup, Westergaard Madsen. Vonir standa til þess,
að hann muni koma til Islands í sumar og kynna nokkuð þessa starf-
semi. Tilgangur gefandans með því framlagi, sem hann hefur afhent
biskupi, er sá að vekja athygli safnaða landsins á þessu verkefni og
örva þá til þess að setja á fót heimili fyrir aldurhnigið fólk. — (Frá
skrifstofu biskups).
Pétur SigurÖsson ritstjóri átti sjötugsafmæli seint á fyrra ári, en
starfar enn af brennandi áhuga og fullu fjöri. „Einingin", blað Stór-
stúkunnar, sem hann stýrir af miklum myndarbrag, flytur stöðugt
auk ritningarkafla, greinar um trú- og siðgæðismál. Hefur Pétur líka,
sem kunnugt er, starfað að kennimennsku, bæði erlendis og hér heima
i fjölda ára. Hann er einn þeirra leikmanna á þessari öld, sem íslenzka
kirkjan á mest að þakka .
Jón Helgason, fyrrum prentsmiðjustjóri og útgefandi Heimilis-
blaðsins og Ljósberans, er nýlega látinn. Hans var getið hér í ,,pistli“
1959, enda unnu fáir Kristi fölskvalausar né leituðust einlægar við
að vinna málum hans gagn meðal þjóðarinnar. Starf Jóns fyrnist sem
annarra, en lengi grær af sáðkornum hans. Viðleitni og fórnfýsi
slikra manna er sigursæl eins og vorandinn.
Garöar prófastur Þorsteinsson mun presta fyrstur hafa tekið upp
þann sið að helga fermingarbörnum og aðstandendum þeirra sérstak-
lega einhverja fyrstu guðsþjónustuna á spurningatímanum. Ýmsir
bafa síðan tekið þetta upp og gefizt einkar vel.
Áheitunum á StrandarkirJcju linnir ekki. Og er það vel m. a. vegna
þess, að hún er nú orðin helzta hjálparhella þeirra safnaða, sem
reisa þurfa kirkjur sínar. Og þannig sannkölluð landskirkja, sem
eflir kristina meðal allrar þjóðarinnar.
Áheit til Hvalsneskirkju í Kjalarnessprófastsdæmi, afhent skrif-
stofu biskups: 1960: Frá Ástu Lóu Bjarnadóttur, Ameriku 100 kr.
Frá N.N. 200 kr. Frá A.H. 50 kr. Frá Haddý og V.K. 315 kr. Frá
ónefndum 500 kr. 1961: 2 áheit frá G.E. 1000 kr. 2 áheit frá Haddy
100 kr.