Kirkjuritið - 01.02.1965, Qupperneq 18
112
KIKKJUUITIÐ
bu'ta með guðsþjónnstu safnaðarins. Þar á allur söfnuðurinn
að koma saman. Mörgum finnst það eina eðlilega, að foreldr-
arnir taki börnin með sér í kirkjuna, og að það eiga þau að
sjálfsögðu að gera, og gera það tæplega of oft. Slík kirkju-
ganga barnanna liefur ómetanlega þýðingu. En bvað um þau
börn, þar sem foreldrarnir koma sjaldan eða aldrei í kirkju? Og
jafnvel þar sem foreldrarnir taka börnin með sér til kirkjunnar,
þá er því ekki að neita, að börnin geta ekki til fullnustu til-
einkað sér guðsþjónustu fullorðna fólksins. Þá er sú bætta á,
að þau verði framandi í kirkjunni og fái jafnvel leið á kirkju-
göngum með fullorðna fólkinu eingöngu. Þess vegna þarf að
lialda sérstakar guðsþjónustur fyrir börnin, þar sem atböfnin
er við liæfi þeirra og slegið á liina barnslegu strengi sálarinnar.
Barnið þarf að lieyra Orðið á þann hátt, sem það skilur það og
verkar á það þannig, að það verði ekki aðeins orð, heldur Orðið.
1 sunnudagaskólanum er boðunin löguð eftir þroska barnsins.
Orðið er gert lifandi og barnið leitt til uppsprettunnar: Biblí-
unnar. Það lærir að þekkja liana og elska hana. Biblían á ætíð
að vera miðdepillinn í kristilegu barnastarfi. Á vorum döguni,
þegar árásir á kristindóminn, og andlegt kæruleysi, eru meiri
en nokkru sinni fyrr, þá er oss nauðsynlegt að safnast samaii
um kjarnann. Uppvaxandi kynslóð þarfnast meiri þekkingar
á kenningu Krists. Margir finna til vanþekkingar sinnar á
Jiessu sviði og vilja bæta þar um. Þeir liafa sig ógjarna í það'
einir, en í æskulýðsfélögunuin er unnt að bæta úr þessari þörf.
Og víða eru æskulýðsfélögin tekin að vinna merkilegt starf í
þessum efnum sem og öðrum í kristilegu uppeldi. Þau vinna
að því, að leggja Biblíuna í Iiönd barna og unglinga og temja
þeim lestur liennar, og einnig að kenna þeim að meta liinu
dýra fjársjóð, sem Sálmabókin innilieldur, og leggja lofsöng
á varir þeirra. Með þessu er barnið undirbúið að taka þátt í
guðsþjónustu safnaöarins. Og fátt er fegurra og meir uppörf-
andi en að sjá bóp barna og unglinga syngjandi lofsöng Guði
til dýrðar.
Ásamt binni beinu þýðingu, sem sunnudagaskólinn og ann-
að barnastarf liefur fyrir börnin, licfur það einnig ábrif útávið.
Presturinn mætir foreldrunum gegnum börnin, þeirra dýrustu
eign. Það er í suinum tilfellum eins og björtu hinna fullorðnu