Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1967, Blaðsíða 30

Kirkjuritið - 01.03.1967, Blaðsíða 30
Benjamín Kristjánsson: Ræða á pálmasunnudag Konungshylling Niður Olíufjallið streyma menn með pálmaviðargreinar í hönd' nm og breiða klæði sín á veginn. Þeir lirópa: „Hósanna, syn1 Davíðs! Blessaður sé konungurinn, sem kemur í nafni Drott' ins!“ Og öll borgin kemst í uppnám. Mannfjöldinn hrópar’ „Það er spámaðurinn, Jesús frá Nasaret í Galileu!“ Einn var sá, sem ekki fagnaði. Það var liann, sem verið var að hylla. Þegar hann sá borgina, grét hann yfir henni. Hann vissi, að þeir tímar mundu koma, er óvinirnir mundu setjast urn hana og gera liervirki, þeir mundu leggja börn liennar að velli og jafna hana við jörðu, svo að ekki yrði eftir skilin11 steinn frá steini. Þessi dagur var upphaf hinnar helgu viku, undirbúningur krýningarinnar, sem varð með þyrnum, þeirrar upphefðar sei» endaði á krossi. Enginn vissi þetta nema spámaðurinn. Ha»n einn bar þessa þungu áhyggju, meðan aðrir glöddust og héldu að guðsríki væri í nánd. Afneitunin. Trúarhrifning pálmasunnudagsins var fljót að snúast í fjand' skap, og konungsliyllingin í afneitun. Hversu margir af þeinn sem báru pálmagreinar fyrir spámanninn meðan þeir liugðu að liann væri að hefja innreið sína til sigursins, mundu svo hah* staðið í flokki óvinanna á föstudaginn langa og hrópað: KrosS' festu, krossfestu liann! Hversu margir munu þá liafa flúið eða afneitað, þegar lífið var ekki lengur sigurganga heldur tár o‘r bóðug þyrnirós?

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.