Kirkjuritið - 01.01.1969, Page 11

Kirkjuritið - 01.01.1969, Page 11
KIRKJURITIÐ 5 lengra út í geiminn, rannsökum sjálfan alheiminn og leitum sælunnar að’ amerískum liætti. „Úð’um í oss matarleiða“ eins og Shakspeare orðaði það svo sniðuglega, með æ meiri áfergju og án nokkurra lioldlegra eða jafnvel siðgæðislegra hamla, en i andlegri ördeyðu. Þetta ástand er bæði svo afskræmilegt og sorglegt í sömu andránni að' það lokkar mig ýmist til að hlægja hástöfum eða fær mig til að lilakka til að ég er senn úr leik — eins og verður eftir áratug eða um ])að bil. Ég verð hálfsjötugur á þessu ári og fer þá í fullnaðarrannsókn (N.T.B.R.). Þá mun einhver stórsnjall og geysi lærður læknir skoða mig að utan og innan og úrskurða af feikilegri speki og niannúð, hvort vert sé að setja mig lengur á. Eins og ég sagði vex mér ýmist fáránleiki alls þessa í augum eða mig dauð- langar að liverfa lir svona óskvnsamlegum lieimi. Nii leyfi ég mér að' lialda af þessum breiða grundvelli á þrengra svið og liugleiða lítillega ástandið í þessum forna liá- skóla, sem ég fyrir kjörs sakir er skamma hríð viðriðinn. Stúdentar í þessum háskóla eins og í öðrum háskólum eiga mests eftirlætis að fagna í velferðarríki voru. Þeim er ætlað að vera vaxtarbroddur framfaranna. Njóta aðdáunar sér eldri ntanna, sem kosta þá og bera á þá lof. Þeir eru hinir útvöldu, seni með djörfung og sigursæld munu hera kyndil framfaranna inn á svið dýrðlegrar framtíðar, er blasir opin við þeim. Nú er það af mér að’ segja, að sá lilutur er ekki til, sem ]>eir kynnu að fremja í uppreisnarliug eða til andmæla gegn þeim venjum og því gildismati, sem komist hefur á í því spillingar- svaði og þeirri andlegu eymd, sem við lifum í — að hann vekti ekki samúð mína að einhverju leyti, eða að minnsta kosti skilning minn, jafnvel þótt svo langt væri gengið að í því fælist, að þessi mikilfenglega bygging, sem vér enim stödd í væri sprengd í loft upp. En hversu óendanlega hörmulegt, og þó um leið vitfyrringslega hlálegt, er það ekki, að uppreisnar- hugur þeirra skuli brjótast út í kröfum um krúsir og pillur, sem hjálparleið til þess auðvirðilegasta sjálfsflótta og taum- leysis, er nokkru sinni hefur þekkst. Hér er um að ræða eitt þeirra dæma, sem skopskyggnum sagnfræðingi hlýtur að vera vel að skapi. Allt er þannig í pottinn búið að sköpunargáfa æskunnar geti leyst hlutina úr læðingi á undursamlegan liátt: vér væntum mikilla listaverka; djarfrar og stórhuga sóknar

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.