Kirkjuritið - 01.01.1969, Síða 30
24
KIRKJUHITIÐ
Aðfaranótt fyrsta starfsdagsins lá ég andvaka. IClukkan 5
um morguninn fór ég fram í stofu, og talaði við minn himn-
eska föður. „Þú veizt það, góði Guð, að ég er í vanda stödd
með tillöguna mína. Hún er hrein og bein. Fæ ég ekki alla
prestana á móti mér með flutningi hennar? Á ég ekki að
hætta við að leggja Iiana fram?“
Ég lagðist fyrir aftur. Ég hef ldotið að sofna, þótt mér fyndist
ég alltaf vera vakandi. Klukkan var á sjötta tímanum og
dimmt í herberginu. Þá lagði liirtu frá Imrðinni, og er ég
lít þangað, sé ég að inn kemur vera, klædd dragsíðum livítum
kyrtli, með hvítan dúk yfir liöfði. Hún gengur að rúmi mínu
og segir við mig: „Ég er sendiboði; ég er kominn með kirkju-
þingsmerkið.“ „Það er ánægjulegt,“ svaraði ég, „það lief ég
aldrei séð.“ Sendiboðinn stendur fyrir framan rúmið mitt,
með útréttar liendur og lieldur á liöfuðgjörð, en framan á
henni er ílangt merki. Ég sest framan á rúmið mitt, tek við
gjöfinni og fer að skoða kirkjuþingsmerkið. Byrja að skoða
liægri ldiðina, eins og sendiboðinn rétti mér það. Merkið var
mjög fallegt, þakið litlum, grænum, lifandi blöðum. Hann
sagði að þessi hluti merkisins táknaði fyrsta Kirkjuþingið á
þessu kjörtímabili, en merkinu væri skipt í þrjá hluta. Mið-
partur þess, sem táknaði annað þingið, var líka mjög fagur,
eins og sá fyrsti. En þegar ég skoðaði vinstri lilið merkisins,
var þar aðeins gjörð, ofin úr grænu seglgarni. Ég leit upp til
sendiboðans og sagði: „Hér eru engin hlöð. Þetta er svo ljótt.
Af hverju er það svona?“ Sendiboðinn svaraði: „Þessi hlutinn
er fyrir þriðja Kirkjuþingið, sem nú situr. Þú talaðir við Guð
þinn, og ætlaðir ekki að flytja neina tillögu og vinna sem þér
ber, svo að þú færð engin blöð á þennan hluta af merkinu
þínu.“ Ég kallaði upp í örvæntingu: „Ó það er synd.“ Ég sat
framan á rúminu mínu með útréttar hendur þegar ég rankaði
við mér. Sendiboðinn var farinn með kirkjuþingsmerkið. Bóndi
minn liafði vaknað, og spurði hvorl nokkuð væri að. „Það
kom svo einkennilegt fyrir mig,“ svaraði ég. Ég hef víst kallað
nokkuð liátt „Ó, það var synd.“
Já, það er synd að vinna ekki það verk, sem maður tekur
að sér.
Ég lagði tillögu mína fram á fyrsta starfsdcgi Kirkjuþingsins.